Körfubolti

Brooks rekinn frá Thunder

Scott Brooks.
Scott Brooks. vísir/getty
Eftir að hafa stýrt liði Oklahoma City Thunder í sjö ár var Scott Brooks rekinn frá félaginu í dag.

Undir stjórn Brooks mistókst Thunder að komast í úrslitakeppnina í ár sem er ekki viðunandi árangur.

Brooks tók við liðinu árið 2008 er PJ Carlesimo var rekinn frá félaginu. Hann kom liðinu í úrslitakeppnina fimm ár í röð. Það munaði mikið um það hjá Thunder í vetur að Kevin Durant gat lítið spilað vegna meiðsla.

Lengst fór liðið í úrslit árið 2012 en þar mátti liðið sætta sig við að tap gegn Miami Heat.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×