Handbolti

Enn einn sigurinn hjá Kiel

Alfreð Gíslason fagnar með lærisveinum sínum.
Alfreð Gíslason fagnar með lærisveinum sínum. vísir/getty
Kiel náði fjögurra stiga forskoti í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Þá vann Kiel sigur á Göppingen, 28-21, í leik sem var erfiðari fyrir Kiel en margir áttu von á.

Munurinn var aðeins eitt mark í hálfleik, 15-14, og það tók Kiel dágóðan tíma að hrista gestina af sér.

Aron Pálmarsson skoraði eitt mark í kvöld en Marko Vujin var markahæstur með sjö mörk. Aron átti fimm skot í leiknum en fann sig ekki. Átti þokkalegan leik en oft verið betri.

Kiel er búið að spila einum leik meira en Rhein-Neckar Löwen sem er í öðru sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×