Eskilstuna Guif í slæmum málum eftir annað tapið í röð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. maí 2015 19:05 Atli Ævar Ingólfsson. Mynd/Heimasíða Guif
Íslendingaliðið Eskilstuna Guif þarf að vinna þrjá leiki í röð til að komast í úrslitaleikinn um sænska meistaratitilinn eftir tap á heimavelli í kvöld. Eskilstuna Guif tapaði þá 22-26 á móti Alingsås HK en Alingsås-liðið vann stórsigur í fyrsta leiknum og vantar því bara einn sigur í viðbót til að komast áfram. Landsliðsmarkvörðurinn Aron Rafn Eðvarðsson varði ekki eitt skot í leiknum en öll átta skotin sem hann fékk á sig höfnuðu í markinu. Hinn markvörður liðsins, Herdeiro Lucao varði 5 af 22 skotum sem komu á hann. Línumaðurinn Atli Ævar Ingólfsson skoraði fjögur mörk úr fimm skotum og var annar markahæsti leikmaður Guif í leiknum. Guif byrjaði illa, lenti 8-4 undir eftir fimmtán mínútur, en var bara einu marki undir í hálfleik, 12-11. Alingsås vann fyrstu ellefu mínútur seinni hálfleiksins 8-3 og komst sex mörkum yfir. Þann mun brúaði Guif-liðið aldrei. Lærisveinar Kristjáns Andréssonar eiga mjög erfitt verkefni fyrir höndum enda næsti leikur á heimavelli Alingsås þar sem Guif tapaði fyrsta leiknum með níu mörkum.
Handbolti Mest lesið Marlena vann Bakgarðshlaupið: „Ég hljóp bara“ Sport Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Fær sér ís í heita pottinum eftir tæplega 250 kílómetra hlaup Sport Haaland kastaði boltanum í hnakkann á Gabriel eftir jöfnunarmark City Fótbolti Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Enski boltinn Sér eftir að hafa valið Val fram yfir KR Íslenski boltinn Marlena er sigurvegari Bakgarðshlaupsins Sport Keane segir Arteta að taka lyfin sín Enski boltinn Refsing fyrir að blóta gæti flýtt fyrir því að Verstappen hætti Formúla 1 Clark slegin í augað í frumraun Körfubolti Fleiri fréttir Hörmulegur seinni hálfleikur varð þýsku meisturunum að falli Orri skoraði þrjú er Sporting valtaði yfir Íslendingaslaginn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Sjö mörk Jóhönnu hjálpuðu til við að landa fyrsta sigrinum Uppgjörið: Fjölnir - HK 28-27 | Flautumarkið fékk ekki að standa og Fjölnir slapp með sigur Ihor fór mikinn í stórsigri Aftureldingar Fullkomin byrjun lærisveina Arnórs heldur áfram Ólafur með fjögur mörk í fyrsta sigri Karlskrona Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Arftaki Kristjáns óvænt hættur Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Elín Klara og Sara Sif sáu um Stjörnuna Slæm byrjun Vals hélt áfram í Garðabænum „Höfðum mýmörg tækifæri til að klára þennan leik miklu fyrr“ „Fyrst og fremst bara ekki nógu sáttur með mína menn“ Gísli Þorgeir bar af í Íslendingaslag kvöldsins Haukar áfram á toppnum með fullt hús stiga Fram áfram með fullt hús Bjarki Már og Orri Freyr með stórsigra í Meistaradeildinni Uppgjörið: FH - ÍBV 33-30 | Góður kafli í fyrri hálfleik skilaði sigri FH-inga Framarar flæktir í óskýrum reglum HSÍ: „Þetta er alveg galið dæmi“ Haukur komið að nítján mörkum í fyrstu tveimur leikjunum í Meistaradeildinni Selfoss átti lítið í Íslandsmeistara Vals „Stefnum á að vera í þessum efri hluta“ Uppgjörið: ÍR - ÍBV 22-22 | Heimakonur komnar á blað Haukur magnaður í sigri á Viktor Gísla og félögum Alfa Brá og Katrín Anna í landsliðið Tímabilið byrjar vel hjá Bjarka sem varð markahæstur í stórsigri Gummersbach gaf mikið eftir í seinni hálfleik Sjá meira