Fótbolti

Rúnar Már hetja Sundsvall

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Rúnar Már skoraði sitt fyrsta mark í sænsku úrvalsdeildinni gegn Hammarby í kvöld.
Rúnar Már skoraði sitt fyrsta mark í sænsku úrvalsdeildinni gegn Hammarby í kvöld. facebook-síða sundsvall
Rúnar Már Sigurjónsson var hetja GIF Sundsvall í Íslendingaslag gegn Hammarby í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Lokatölur 1-2, Sundsvall í vil.

Rúnar skoraði sigurmark Sundsvall á lokamínútunni og tryggði liðinu stigin þrjú. Þetta var fyrsta mark Rúnars í sænsku úrvalsdeildinni.

Jón Guðni Fjóluson lék allan leikinn í vörn Sundsvall og þá var Birkir Már Sævarsson í byrjunarliði Hammarby og lék allan leikinn.

Með sigrinum komst Sundsvall upp í 11. sæti deildarinnar með 10 stig. Hammarby er tveimur sætum ofar með 10 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×