Stjarnan og FH mætast í kvöld í stórleik 5. umferðar Pepsi-deildar karla.
Þessi lið háðu mikla baráttu um Íslandsmeistaratitilinn í fyrra og mættust í hreinum úrslitaleik í lokaumferðinni þar sem Stjarnan hafði betur eins og frægt er orðið.
Til að hita upp fyrir þennan leik er við hæfi að rifja upp frægan leik liðanna frá 2011 þegar Stjörnumenn tóku FH-inga í karphúsið.
Leikurinn var í 17. umferð en FH var á þeim tíma að elta KR í toppbaráttuni. FH-ingar mættu fullir sjálfstrausts til leiks enda búnir að vinna fimm leiki í röð. Þeir réðu hins vegar lítið við sprækt Stjörnulið sem endaði í 4. sæti deildarinnar sem var þá þeirra besti árangur í efstu deild.
Garðar Jóhannsson skoraði fyrsta mark leiksins á 11. mínútu er hann fylgdi eftir skoti Ellerts Hreinssonar sem fór í stöng.
Staðan var 1-0 í hálfleik en Ingvar Jónsson kom í veg fyrir að FH-ingar næðu að skora með góðum markvörslum.
Bjarki Páll Eysteinsson kom Stjörnunni í 2-0 á 57. mínútu með góðu skoti fyrir utan teig. Og sex mínútum síðar skoraði Garðar sitt annað mark eftir slæm mistök hjá Tommy Nielsen og Gunnari Sigurðssynu, markverði FH. Þetta var 12. mark Garðars í deildinni en hann varð markakóngur Pepsi-deildarinnar 2011 með 15 mörk.
Þorvaldur Árnason fullkomnaði svo stórsigur Stjörnunnar þegar hann skoraði af stuttu færi á 65. mínútu eftir sendingu Bjarka Páls. Niðurstaðan 4-0 stórsigur Stjörnunnar.
Mörkin úr leiknum má sjá hér að ofan.
