Körfubolti

Malaga og Baskonia mætast í oddaleik

Jón Arnór kom ekkert við sögu í leiknum vegna meiðsla.
Jón Arnór kom ekkert við sögu í leiknum vegna meiðsla. vísir/getty
Unicaja Malaga, lið Jóns Arnórs Stefánssonar, mátti sætta sig við tíu stiga tap gegn Saski Baskonia í öðrum leik liðanna í átta liða úrslitum úrslitakeppninnar á Spáni, 92-82. Jón Arnór glímir við bakmeiðsli sem hann varð fyrir á dögunum og kom ekkert við sögu í leiknum.

Baskarnir í Saski höfðu yfirhöndina alla leikinn og leiddu 49-36 í hálfleik. Staðan í einvígi liðanna er því 1-1 en tvo sigra þarf til að komast áfram. Malaga vann fyrsta leikinn á sínum heimavelli 69-55 en oddaleikurinn fer fram á mánudaginn í Malaga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×