Jordan heldur áfram að skipta á leikmönnum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 25. júní 2015 16:00 Batum varð Evrópumeistari með franska landsliðinu 2013. vísir/getty
NBA-liðin Charlotte Hornets og Portland Trail Blazers skiptu á leikmönnum í gær. Portland sendi franska framherjann Nicolas Batum til Charlotte en fengu í staðinn Gerald Henderson og Noah Vonleh. Charlotte, sem er í eigu Michael Jordan, stendur í enduruppbyggingu en ekki er langt síðan liðið skipti Lance Stephenson til Los Angeles Clippers fyrir Spencer Hawes og Matt Barnes. Batum spilaði með Portland í sjö ár en hann er með 11,2 stig, 5,1 fráköst og 4,8 stoðsendingar að meðaltali í leik á ferlinum í NBA. Hann náði sér hins vegar ekki vel á strik í fyrra og hefur aldrei verið með jafn slaka skotnýtingu (40,0%). Þrátt fyrir að hafa ekki hitt vel á síðasta tímabili er koma Batums liður í því að gera Charlotte-liðið hættulegra fyrir utan. Ekki er vanþörf á en Býflugurnar voru með verstu þriggja stiga nýtingu allra liða í NBA í vetur (31,8%). Henderson, sem leikur í stöðu skotbakvarðar, var með 12,1 stig að meðaltali í leik í fyrra en það var lægsta meðalskor hans í leik frá tímabilinu 2010-11. Vonleh var valinn númer níu í nýliðavalinu í fyrra en spilaði lítið á síðasta tímabili, aðeins 25 leiki.
NBA Tengdar fréttir Jordan gafst upp á Stephenson og sendi hann til Clippers Lance Stephenson mun spila með Los Angeles Clippers í NBA-deildinni í körfubolta á næsta tímabil eftir að Clippers skipti á honum og tveimur leikmönnum Charlotte Hornets. 16. júní 2015 12:00 Mest lesið Marlena er sigurvegari Bakgarðshlaupsins Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Enski boltinn Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport „Hundrað kílómetrar að drepast úr sýkingu er bara fínt“ Sport Veðmál systkina til lykta leitt: „Veit að ég mun aldrei tapa fyrir honum“ Sport „Hún reif í mig og hraunaði yfir mig, á Marilegan hátt“ Sport Uppgjörið: KR - Vestri 2-2 | Guy Smit bjargaði stigi fyrir KR Íslenski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira
Jordan gafst upp á Stephenson og sendi hann til Clippers Lance Stephenson mun spila með Los Angeles Clippers í NBA-deildinni í körfubolta á næsta tímabil eftir að Clippers skipti á honum og tveimur leikmönnum Charlotte Hornets. 16. júní 2015 12:00