Línan var litrík þar sem útvíðar síðar skálmar, stuttar ermar, vel sniðin tvíhneppt jakkaföt og svokallaðar "pussy blouses" eða blússur með slaufum í hálsinn voru áberandi. Munstrin minntu svo á veggfóður sjöunda áratugarins.
Flestar fyrirsæturnar voru tilhafðar að of var ekki hægt að greina um hvort kynið væri að ræða og sagði Tim Blanks hjá Style.com að Gucci kynnti nú til sögunnar hið nýja pönk.
Sjón er sögu ríkari en Glamour er hrifið af þessari línu tískuhússins fyrir vor og sumar 2016.








Fylgstu með Glamour á Facebook og Instagram.