Dramamatíkin verður vart meiri heldur en hún var á lokaholunum á US Open sem kláraðist í kvöld en Jordan Spieth tryggði sér sinn annan risatitil í röð eftir að hafa leikið holurnar 72 á Chambers Bay á fimm höggum undir pari.
Á eftir honum komu þeir Louis Oosthuizen og Dustin Johnson á fjórum höggum undir en sá síðarnefndi var með pálmann í höndunum þegar að hann labbaði inn á flötina á 18. holu enda hafði hann rúmlega fjögurra metra pútt fyrir erni og til þess að sigra á mótinu.
Taugarnar fóru þó illa með Johnson sem þrípúttaði á einhvern ótrúlegan hátt en hann fékk að lokum bara par á holuna sem tryggði hinum 21 árs gamla Spieth titilinn.
Adam Scott, Cameron Smith og Branden Grace deildu fjórða sætinu á þremur höggum undir pari en Grace hafði leikið frábært golf á lokahringnum áður en hann sló boltann út fyrir vallarmörk á 16. holu sem kostaði hann tvöfaldan skolla.
Þá gerði Rory McIlroy einnig atlögu að titlinum en hann var átta höggum frá efstu mönnum fyrir lokahringinn.
McIlroy fékk hvern fuglinn á fætur öðrum og var um tíma kominn í toppbaráttuna en tveir skollar seint á hringnum urðu til þess að hann datt aftur niður skortöfluna.
Jordan Spieth er yngsti kylfingurinn til þess að sigra á US Open síðan að Bobby Jones gerði það árið 1923 en ljóst er að þessi magnaði kylfingur er kominn til að vera á toppnum í mörg ár.
