Þór heldur áfram að safna leikmönnum Anton Ingi Leifsson skrifar 20. júní 2015 14:30 Benedikt heldur áfram að safna leikmönnum. vísir/vilhelm
Ragnar Helgi Friðriksson er genginn í raðir Þór Akureyri í fyrstu deild karla, en hann kemur á venslasamning frá Njarðvík til Þór. Ragnar er einn af efnilegri leikstjórnendum landsins og heldur nú norður yfir heiðar, en þetta kemur fram á heimasíðu Þórs. „Ragnar er mikill hvalreki fyrir okkur. Hann er einn allra efnilegasti leikstjórnandi landsins. Þetta kom óvænt upp og er búið að gerast hratt. Þegar okkur bauðst að fá Ragnar á venslasamning vorum við snöggir að taka honum fagnandi," sagði Benedikt Guðmundsson, þjálfari Þórs, í viðtali við heimasíðu Þórs. „Hann er ekki bara gríðarlegt efni heldur er hann sterkur andlega og mun smita góðu viðhorfi inn í okkar sterka hóp. Ég hef spilað gegn honum í yngri flokkunum og lengi verið mjög hrifinn af honum sem leikmanni og er viss um að hann mun halda áfram að vaxa og dafna hjá okkur á Akureyri." Ragnar Helgi er bróðir Elvars Más Friðrikssonar, fyrrverandi leikmanns Njarðvíkur og landsliðsmanns, en Benedikt er himinilfandi með að fá Ragnar til liðs við sína menn. „Hann kemur úr frábæru yngri flokka prógrammi í Njarðvík og er því vel skólaður til af mönnum eins og Einari Árna og Friðrik Inga og fleiri topp þjálfurum," sagði Benedikt að lokum. Ragnar Helgi er fjórði leikmaðurinn sem Benedikt fær norður, en hinir þrír eru Danero Thomas, Þröstur Leó Jóhannsson og Sindri Davíðsson.
Íslenski körfuboltinn Mest lesið Sú besta í heimi komst ekki á blað hjá íslenska landsliðsþjálfaranum Fótbolti Dauðaslys í maraþonhlaupi Sport Átta þúsund krónur fyrir miða á úrslitaleik HM í stað 529 þúsund Fótbolti Man United ósátt við Marokkó og FIFA Enski boltinn Öðruvísi lið en áður hafa sóst í Frey: „Vita hvar ég stend“ Fótbolti KSÍ missti af meira en milljarði króna Fótbolti Hefur aldrei séð svona ofbeldi: „Þetta var allt of mikið“ Sport Enginn blóðugur en einn brjálaður á HM í kvöld Sport Stjarnan fór í dulargervi: Setti stuðningsmann United á óþekka listann Enski boltinn Kona vann Ísmaraþonið á Suðurskautslandinu í fyrsta sinn Sport Fleiri fréttir Guðbjörg fyrsta konan í fjögur hundruð leikina Stjarnan og Grindavík mætast í bikarnum Tryggvi og Sara best á árinu New York Knicks vann titil í nótt Umfjöllun: Keflavík 97 - 84 Ármann | Sannfærandi sigur heimakvenna Martin áfram í sextán liða úrslit Meistaradeildarinnar Valskonur ekki í neinum vandræðum á heimavelli Segir að Keflvíkingar hafi ekki þolað gott umtal Yngstur í sögu NBA til að skora fjörutíu stig Stjarnan jók á raunir Álftaness og Valsmenn slógu ÍR-inga út „Auðvitað var þetta sjokk“ Skór sem Jordan notaði seldust á tæplega níutíu milljónir Sagði fyrst nei við beiðni Kjartans: „Menn hálf skammast sín“ Breyttist úr hetju í skúrk: Rekinn út af fyrir að ögra LeBron „Troðslan sem þið sjáið núna verður ekki toppuð“ Tindastóll, Keflavík og KR brunuðu áfram í bikarnum Hilmar með frábærar mínútur og risaþrist í dramatískum sigri Aftur og nýbúnir en núna í bikarnum KR, Aþena og Tindastóll örugglega áfram í bikarnum Íslandsmeistararnir unnu bikarmeistarana í framlengingu Elvar leiddi liðið til sigurs Tryggvi lét mest til sín taka Wembanyama sneri aftur í sigri gegn meisturunum Jónína Þórdís gældi við þrennuna og Ármann fór áfram í bikarnum Sara Rún með sigurkörfuna í ótrúlegri endurkomu Keflavíkur Kjartan Atli lætur af störfum Körfuboltakvöld í áfalli yfir vörn Álftaness: „Bara kjánalegt að horfa á þetta“ Curry sneri aftur með miklum látum Uppgjörið:Njarðvík - Þór Þorlákshöfn 92-93| Stigin til Þorlákshafnar eftir háspennu Álftanes - Tindastóll 78-137 | Metin slegin í stórsigri Stólanna Sjá meira