Fótbolti

Jafntefli í toppslag hjá Ingvari

Anton Ingi Leifsson skrifar
Ingvar í leik með Stjörnunni.
Ingvar í leik með Stjörnunni. vísir/daníel
Ingvar Jónsson stóð allan tímann vaktina í 1-1 jafntefli Sandnes Ulf við Brann í toppslag í norsku B-deildinni í knattspyrnu í dag.

Marcus Pedersen kom Brann yfir á tuttugustu mínútu, en adam var ekki lengi í paradís. Einungis sjö mínútum síðar jafnaði Kent Håvard Eriksen metin og staðan í hálfleik 1-1.

Fleiri urðu mörkin ekki í síðari hálfleik og Sandnes er í öðru sætinu með 32 stig, þremur stigum á eftir toppliði Sogndal. Brann er í þriðja sætinu með 31.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×