Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr Golfklúbbi Reykjavíkur og Valdís Þóra Jónsdóttir úr golfklúbbnum Leyni, eru meðal efstu kylfinga fyrir lokahringinn á lokamóti LETAS-mótaraðarinnar sem fer fram í Englandi í dag.
LETAS-mótaröðin er sú næst sterkasta í Evrópu en þetta er fyrsta tímabil Ólafíu á mótaröðinni en Valdís tekur þátt annað árið í röð eftir að hafa endað í 38. sæti á síðasta ári.
Ólafía lék fyrsta hring mótsins vel og lauk leik á fjórum höggum undir pari en hún náði sér ekki jafn vel á strik í gær og lék á tveimur höggum yfir pari.
Náði hún aðeins tveimur fuglum á hringnum en fjórum skollum og er í 8-9. sæti á tveimur höggum undir pari, sjö höggum á eftir Natalia Escuriola.
Spilamennska Valdísar í gær var sveiflukennd þrátt fyrir að leika á pari en hún fékk sex fugla, tvo skolla og tvo tvöfalda skolla á hringnum.
Hefur Valdís leikið báða hringina á pari en hún hefur alls krækt í ellefu fugla á fyrstu tveimur hringjunum og er í 11. sæti að tveimur hringjum loknum.
Mótið er lokamót LETAS-mótaraðarinnar en Ólafía er í 16. sæti stigalistans eftir góða frammistöðu í Portúgal um síðustu helgi.
Valdís er í 25. sæti eftir að hafa misst af niðurskurðinum í Portúgal en 20. efstu kylfingarnir fara beint inn á lokaúrtökumótið fyrir LET-Evrópumótaröðina, þá sterkustu í Evrópu.
Aðeins einni íslenskri konu hefur tekist að komast á LET-Evrópumótaröðinni en það var Ólöf María Jónsdóttir úr Golfklúbbnum Keili árið 2004.
Ólafía og Valdís meðal efstu kylfinga fyrir lokahringinn

Tengdar fréttir

Ólafía Þórunn efst eftir fyrsta daginn á lokamótinu
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR og Valdís Þóra Jónsdóttir úr Leyni eru í góðri stöðu eftir fyrsta keppnisdaginn á lokamóti tímabilsins á LETAS atvinnumótaröðinni í golfi. Ólafía lék á 68 höggum eða fjórum höggum undir pari og er hún í efsta sæti. Valdís Þóra lék á pari vallar eða 72 höggum og er hún 10. til 14. sæti.