Tillaga Íslands samþykkt einróma á þingi IHF

Guðmundur B. Ólafsson formaður HSÍ og Davíð B. Gíslason varaformaður HSÍ sátu þingið fyrir hönd Handknattleikssambands Íslands en þar voru tekin fyrir hefðbundin aðalfundastörf IHF eins og ávallt er gert á tveggja ára fresti.
Meðal annars eru teknar fyrir tillögur frá álfusamböndum eins og Handknattleikssambands Evrópu (EHF) en einnig má bera fram tillögur einstakra sérsambanda líkt og HSÍ í þessu tilfelli.
„Í ljósi atburða í aðdraganda síðustu heimsmeistarakeppni (HM í Katar 2015) og gagnrýni HSÍ á huglæga ákvarðanatöku IHF við val á þátttökuþjóðum í HM í Katar, lagði HSÍ fram breytingartillögur á aðalreglum IHF í því skyni að tryggja að ákvarðanir IHF verði teknar af hlutlægum sjónarmiðum og ekki væri hægt að breyta reglum eftir að keppni væri hafin. Þessar breytingar voru samþykktar af þingfulltrúum IHF einróma," segir í frétt á heimasíðu HSÍ.
Guðmundur B. Ólafsson, formaður HSÍ, sagði í samtalið við heimasíðu HSÍ að hér sé um mikla breytingu á lögum IHF að ræða. „Með þessum breytingartillögum var verið að fylgja eftir sjónarmiðum HSÍ í þeim ágreiningi sem sambandið átti í við IHF fyrir HM í Katar og með samþykkt þeirra teljum við að komið sé í veg fyrir geðþóttaákvarðanir við val á þátttökuþjóðum í heimsmeistarakeppni," sagði Guðmundur í fréttinni á hsi.is.
Það var þó ekki hundrað prósent árangur hjá íslensku sendinefndinni því hin tillaga Handknattleikssambands Íslands var felld.
„HSÍ lagði jafnframt fram tillögu fyrir þingið um að ekki væri hægt að meina liði þátttöku frá HM vegna getamunar, eftir að það hafi tryggt sér þátttökurétt skv. reglum IHF. Þessi tillaga mætti andstöðu stjórnar IHF með þeim rökum að þeir vildu geta tryggt gæði leikja á HM og var þessi tillaga því felld eftir þó nokkrar umræður," segir í fréttinni á hsi.is.
Tengdar fréttir

Formaður HSÍ um HM-sætið: Ég bara veit ekki hvað mun gerast
Alþjóðahandknattleikssambandið tekur endanlega ákvörðun í dag um hvaða þjóðir spila á HM í handbolta.

Guðmundur B. Ólafsson: Ég þarf ekki að tala Aron Pálmarsson til
Aron Pálmarsson verður með íslenska landsliðinu á HM í handbolta í Katar þrátt fyrir ummæli í vikunni um að hann nennti ekki að koma inn á HM sem einhver varaþjóð. Formaður HSÍ hefur engar áhyggjur af því að Aron verði ekki klár í verkefnið en Ísland fékk í dag sæti á HM í Katar í janúar.

Þetta lýsir vonandi upp myrkrið fyrir íslensku þjóðina
Guðmundur B. Ólafsson, formaður HSÍ, var ánægður með fréttir gærkvöldsins þegar Ísland fékk sæti á HM í Katar ásamt Sádí-Arabíu en þetta var niðurstaða fundar Framkvæmdastjórnar IHF. "Við gleðjumst svo sannarlega yfir þessu og teljum þetta vera mikið og stórt skref fyrir hreyfinguna,“ sagði Guðmundur.

Formaður HSÍ: Ánægjuleg niðurstaða og gríðarlega mikilvægt fyrir okkur
Ísland verður ein af þeim 24 þjóðum sem berjast um heimsmeistaratitilinn í handbolta í Katar í janúar en þetta varð endanlega ljóst eftir fund Framkvæmdastjórnar Alþjóðahandboltasambandsins í kvöld.

Formaður HSÍ: Skoðuðum ekki aðra kosti í starfið
Handknattleikssambandið gekk frá tveggja ára framlengingu á samningi Arons Kristjánssonar sem landsliðsþjálfara karla í dag.

Utan vallar: Ekki í aðstöðu til að segja nei
Auðvitað ætti Ísland að afþakka sætið á HM í handbolta og segja þessum trúðum hjá Alþjóðahandknattleikssambandinu að éta það sem úti frýs.