Körfubolti

Fínn leikur Jakobs dugði ekki til

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Jakob í leik með Sundsvall.
Jakob í leik með Sundsvall. vísir/valli
Jakob Örn Sigurðarson og félagar í Boras Basket fengu á baukinn í Evrópukeppninni í kvöld.

Þá sóttu þeir ítalska liðið Foxtown Cantu heim og steinlágu, 94-72.

Jakob Örn átti virkilega fínan leik fyrir sitt lið. Skoraði 16 stig, tók 3 fráköst og gaf eina stoðsendingu.

Cantu komst í toppsæti E-riðils með sigrinum en Boras er í þriðja sæti af fjórum liðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×