Enski boltinn

Liverpool með flesta leikmenn á EM 2016?

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Emre Can er einn af Liverpool-mönnum sem gætu verið á leiðinni á EM í Frakklandi næsta sumar. Hér er hann með knattspyrnustjóranum Jürgen Klopp.
Emre Can er einn af Liverpool-mönnum sem gætu verið á leiðinni á EM í Frakklandi næsta sumar. Hér er hann með knattspyrnustjóranum Jürgen Klopp. Vísir/Getty
Í gær var endanlega ljóst hvaða 24 þjóðir munu keppa á Evrópumótinu í Frakklandi en Svíar og Úkraínumenn tryggðu sér síðustu sætin.

Sky Sports notaði tækifærið og reiknaði út hversu margir leikmenn hjá öllum liðunum í ensku úrvalsdeildinni væru á leiðinni til Frakklands næsta sumar.

Íslenski landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson er einn af sex leikmönnum Swansea City sem eru á leið á EM en það kemur kannski einhverjum á óvörum að það sé Liverpool sem er í efsta sætinu.

Viðmið Sky Sports eru leikmenn hjá landsliði á leið á EM sem hafa spilað í það minnst einn landsleik á síðustu tveimur árum. Þeir bæta síðan við listann leikmönnum sem eru afar líklegir til að komast í lokahóp sinna þjóða.

Liverpool á sextán leikmenn sem eru á leið á EM en þar með talinn er Daniel Sturridge sem hefur ekkert verið með enska landsliðinu að undanförnu vegna meiðsla.

Liverpool er með einum manni fleiri en Arsenal og þremur leikmönnum fleira en Manchester United og Tottenham. Hér fyrir neðan má sjá allan listann hjá Sky-mönnum.

Fjöldi leikmanna ensku úrvalsdeildarliðanna á leið á EM:

Liverpool - 16 leikmenn

Joe Allen (Wales)

Christian Benteke (Belgía)

Adam Bogdan (Ungverjaland)

Emre Can (Þýskaland)

Nathaniel Clyne (England)

Jordan Henderson (England)

Danny Ings (England)

Dejan Lovren (Króatía)

Adam Lallana (England)

Simon Mignolet (Belgía)

James Milner (England)

Alberto Moreno (Spánn)

Divock Origi (Belgía)

Mamadou Sakho (Frakkland)

Martin Skrtel (Slóvakía)

Daniel Sturridge (England)

Arsenal - 15 leikmenn

Santi Cazorla (Spánn)

Petr Cech (Tékkland)

Calum Chambers (England)

Mathieu Debuchy (Frakkland)

Kieran Gibbs (England)

Olivier Giroud (Frakkland)

Laurent Koscielny (Frakkland)

Per Mertesacker (Þýskaland)

Alex Oxlade-Chamberlain (England)

Mesut Özil (Þýskaland)

Aaron Ramsey (Wales)

Tomas Rosicky (Tékkland)

Theo Walcott (England)

Danny Welbeck (England)

Jack Wilshere (England)

Manchester United - 12 leikmenn

Michael Carrick (England)

Matteo Darmian (Ítalía)

David de Gea (Spánn)

Marouane Fellaini (Belgía)

Phil Jones (England)

Anthony Martial (Frakkland)

Juan Mata (Spánn)

Paddy McNair (Norður-Írland)

Wayne Rooney (England)

Morgan Schneiderlin (Frakkland)

Bastian Schweinsteiger (Þýskaland)

Chris Smalling (England)

Tottenham - 12 leikmenn

Toby Alderweireld (Belgía)

Dele Alli (England)

Nacer Chadli (Belgía)

Ben Davies (Wales)

Mousa Dembele (Belgía)

Eric Dier (England)

Harry Kane (England)

Hugo Lloris (France)

Ryan Mason (England)

Andros Townsend (England)

Jan Vertonghen (Belgía)

Kyle Walker (England)

Everton - 10 leikmenn

Leighton Baines (England)

Ross Barkley (England)

Seamus Coleman (Írland)

Darron Gibson (Írland)

Phil Jagielka (England)

Romelu Lukaku (Belgía)

James McCarthy (Írland)

Aiden McGeady (Írland)

Kevin Mirallas (Belgía)

John Stones (England)

Manchester City - 10 leikmenn

Kevin De Bruyne (Belgía)

Fabian Delph (England)

Joe Hart (England)

Eliaquim Mangala (Frakkland)

Vincent Kompany (Belgía)

Samir Nasri (Frakkland)

Jesus Navas (Spánn)

Bacary Sagna (Frakkland)

David Silva (Spánn)

Raheem Sterling (England)

Chelsea - 9 leikmenn

Cesar Azpilicueta (Spánn)

Gary Cahill (England)

Diego Costa (Spánn)

Thibaut Courtois (Belgía)

Cesc Fabregas (Spain)

Eden Hazard (Belgía)

Pedro (Spánn)

Loic Remy (Frakkland)

Kurt Zouma (Frakkland)

Southampton - 9 leikmenn

Ryan Bertrand (England)

Steven Davis (Norður-Írland)

Jose Fonte (Portúgal)

Fraser Forster (England)

Florin Gardos (Rúmenía)

Shane Long (Írland)

Graziano Pelle (Ítalía)

Jay Rodriguez (England)

Cedric Soares (Portúgal)

West Brom - 9 leikmenn

Chris Brunt (Norður-Írland)

James Chester (Wales)

Jonny Evans (Norður-Írland)

Ben Foster (England)

Rickie Lambert (England)

Gareth McAuley (Norður-Írland)

James McClean (Írland)

Jonas Olsson (Svíþjóð)

Sebastien Pocognoli (Rúmenía)

Stoke City - 8 leikmenn

Marko Arnautovic (Austurríki)

Jack Butland (England)

Shay Given (Írland)

Stephen Ireland (Írland)

Glen Johnson (England)

Jonathan Walters (Írland)

Glenn Whelan (Írland)

Marc Wilson (Írland)

Swansea - 6 leikmenn

Eder (Portúgal)

Lukasz Fabianski (Pólland)

Jonjo Shelvey (England)

Gylfi Sigurðsson (Ísland)

Neil Taylor (Wales)

Ashley Williams (Wales)

Leicester City - 5 leikmenn

Andy King (Wales)

Christian Fuchs (Austurríki)

Gokhan Inler (Sviss)

Andrej Kramaric (Króatía)

Jamie Vardy (England)

Sunderland - 5 leikmenn

Fabio Borini (Ítalía)

Sebastian Larsson (Svíþjóð)

John O'Shea (Írland)

Costel Pantilimon (Rúmenía)

Ola Toivonen (Svíþjóð)

Norwich City - 4 leikmenn

Robbie Brady (Írland)

Wes Hoolahan (Írland)

Kyle Lafferty (Norður-Írland)

Martin Olsson (Svíþjóð)

Bournemouth - 3 leikmenn

Harry Arter (Írland)

Artur Boruc (Pólland)

Shaun MacDonald (Wales)

Crystal Palace - 3 leikmenn

Yohan Cabaye (Frakkland)

Wayne Hennessey (Wales)

Joe Ledley (Wales)

Newcastle United - 3 leikmenn

Paul Dummett (Wales)

Robert Elliot (Írland)

Moussa Sissoko (Frakkland)

Watford - 3 leikmenn

Valon Behrami (Sviss)

Craig Cathcart (Norður-Írland)

Sebastian Prodl (Austurríki)

West Ham - 3 leikmenn

James Collins (Wales)

Dimitri Payet (Frakkland)

Darren Randolph (Írland)

Aston Villa - 2 leikmenn

Ciaran Clark (Írland)

Philippe Senderos (Sviss)




Fleiri fréttir

Sjá meira


×