Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins vinnur nú að því að setja upp aðgerðarstöð í Skógarhlíð vegna stormsins sem von er á. „Það er komið allsherjarráð í gang og aðgerðarstöð fyrir höfuðborgarsvæðið er í startholunum,“ sagði slökkviliðsmaður á vakt í morgun í samtali við fréttastofu.
Sjá einnig: „Bíður upp á vandræði“ að fara út í umferðina
Slökkviliðið fylgist meðal annars með veðrinu fyrir skólastjórnendur í borginni en í gær var send út tilkynning 1, en hún er send út daginn fyrir veðurofsa til að láta vita að ástæða sé til að fylgjast vel með veðri vegna vondrar veðurspár.
Brýnt hefur verið fyrir skólastjórnendum að fylgjast vel með veðrinu í dag og þessum tilkynningum slökkviliðsins.
Tvö viðbúnaðarstig eru möguleg; annars vegar viðbúnaðarstig 1 þegar röskun verður á skólastarfi vegna erfiðleika starfsfólks og nemenda við að komast í skólann og hins vegar viðbúnaðarstig 2 þegar fella þarf niður skólahald vegna veðurs.
Aðgerðarstöð fyrir höfuðborgarsvæðið er í startholunum

Tengdar fréttir

Gæti orðið svipað óveður á morgun og 6. mars árið 2013
Hundruð bíla sátu fastir á höfuðborgarsvæðinu, færa þurfti börnum mat í bíla, álag gífurlegt á neyðarlínuna og tugir bíla lentu í árekstri

Stormviðvörun: „Býður upp á vandræði“ að fara út í umferðina
Veðrið mun ná hámarki um og upp úr hádegi á höfuðborgarsvæðinu en halda síðan áfram yfir landið.

Fylgstu með lægðinni nálgast á gagnvirku korti
Það ætti ekki að hafa farið framhjá nokkrum manni að vitlausu veðri hefur verið spáð undir morgun.