Heimildirnar herma að umræddum starfsmanni lögreglu hafi í framhaldinu verið boðið að færa sig til í starfi innan lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á meðan mál hans væru til skoðunar. Færði hann sig í kjölfarið um set og hóf störf á annarri deild.
Ástæða þess að honum var vikið frá störfum sínum, með eða án samþykkis, er vegna þráláts orðróms þess efnis að starfsmaðurinn hafi lekið upplýsingum um málefni er voru til skoðunar hjá lögreglu. Upplýsingarnar, sem starfsmaðurinn hafði aðgang að gátu meðal annars haft áhrif á stór fíkniefnamál. Ekki hefur tekist að fá staðfest hverslags upplýsingar það voru eða hvort einhver tiltekin sakamál séu til skoðunar í þessum efnum.

Við rannsóknir lögreglu eru upplýsingar af ýmsum toga sem miklu máli skiptir að leki ekki út. Upplýsingarnar geta nýst aðilum sem eru til rannsóknar. Lögregla beitir ýmsum úrræðum við rannsóknir sem mikilvægt er að séu leynilegar. Má þar nefna hlustanir, eftirfararbúnað, sérstakt eftirlit með fólki og tálbeituaðgerðir eins og þá sem Vísir hefur fjallað um undanfarnar vikur.
Þeir brotahópar eða aðilar sem til rannsóknar eru geta haft mikinn hag af því að vera upplýstir um aðgerðir lögreglu, hvort sem aðgerðirnar beinast gegn þeim sjálfum eða samkeppnisaðilum þeirra. Hvatinn getur verið ýmis, en líklega mestur að komast upp með skipulögð brot.
Vísir hefur fjallað um verðmæti þeirra fíkniefna sem haldlögð hafa verið á undanförnum mánuðum. Verðmætin hlaupa á mörg hundrað milljónum króna og leynist það því engum hve dýrmætt væri fyrir skipuleggjendur slíks máls að hafa innsýn í eða upplýsingar um eftirlit löggæslustofnana.

Í umfjöllun Vísis um tálbeituaðgerðina sem fór út um þúfur við Hótel Frón síðastliðna páska hefur Aldís Hilmarsdóttir, yfirmaður fíkniefnadeildar, blásið á kenningar fjölmargra lesenda Vísis þess efnis að tálbeituaðgerðin hefði klúðrast vegna spillingar í röðum lögreglu.
„Það er ekki grunur um að eitthvað slæmt hafi átt sér stað,“ sagði Aldís. Friðrik Smári Björgvinsson, yfirlögregluþjónn á höfuðborgarsvæðinu sem bar ábyrgð á aðgerðum lögreglu við Hótel Frón ásamt Aldísi, tók í sama streng. Hann sagði að tæknilegir örðugleikar í fjarskiptakerfi lögreglu hafi átt þar hlut í máli og sagði engan grun um spillingu.
Vilja ekki tjá sig um málið
Aldís og Friðrik vildu hvorug tjá sig um málið nú í morgun þegar eftir því var leitað og vísuðu á lögreglustjórann Sigríði Björk Guðjónsdóttur. Sigríður var vant við látin þegar blaðamaður náði á hana en ætlaði að vera í sambandi síðar í dag.