Eftir langa orrustu hopuðu lögregla og herlið írösku ríkisstjórnarinnar frá borginni Ramadi undan látlausri sókn hersveita Íslamska ríkisins, ISIS, á sunnudag. Ramadi er höfuðborg Anbar-héraðs sem er fjölmennasta hérað Íraks. Íslamska ríkið ræður nú yfir um helmingi héraðsins.
Frá því Íslamska ríkið tók borgina hefur ástandið þar valdið flótta um 25 þúsund manns. Margir velja frekar að sofa undir berum himni utan borgarinnar án matar en að hætta á að vera eftir í borginni. Sameinuðu þjóðirnar hafa reynt að koma flóttamönnunum til bjargar en fjármagnið er af skornum skammti enda hefur þörfin lengi verið mikil.
ISIS-liðar hafa gengið um borgina og kveikt í húsum og verslunum fólks sem hliðhollt er ríkisstjórn Íraks. Að auki hafa ISIS-liðar opnað dyr fangelsa borgarinnar og frelsað um fjögur hundruð bræður sína og systur. Íbúar borgarinnar segjast einnig hafa séð liðsmenn Íslamska ríkisins fleygja þeim látnu í ána Efrat sem borgin stendur við.
Íraska ríkisstjórnin vann borgina Tikrit aftur á sitt band í síðasta mánuði og hefur síðan þá gengið vel að herja á svæði Íslamska ríkisins. Fall Ramadi er því stórt tap fyrir Írak.
Íraska ríkisstjórnin er tilbúin til samstarfs við herskáar uppreisnarsveitir sjíamúslima austan borgarinnar til þess að ná borginni aftur af ISIS.
Íbúar í Ramadi, sem flestir eru súnnímúslimar, hræðast sveitir sjíamúslima til jafns við Íslamska ríkið. „Ef sveitir sjíamúslima komast inn í Ramadi munu þær gera það sama og ISIS-liðar gera nú,“ hefur fréttaveita AP eftir búðareigandanum Abu Ammar.
Talsmaður varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna, Elissa Smith, segir fall borgarinnar ekki marka viðsnúning í stríðinu gegn Íslamska ríkinu en játar að það muni þó ýta hressilega undir áróðursvél ríkisins.
Íslamska ríkið berst nú víðs vegar um Miðausturlönd og hefur upp á síðkastið unnið stóra sigra í Líbíu, Írak, Sýrlandi og Líbanon.
ISIS-liðar hafa gengið berserksgang í Ramadi

Tengdar fréttir

ISIS-liðar ná Ramadi á sitt vald
Sex bílsprengjur sprungu fyrir utan helstu stjórnarbyggingu Ramadi áður en liðsmenn ISIS réðust til atlögu.

Hafa náð völdum í Ramadi
Vígamenn Ríkis Íslams náðu yfirráðum í höfuðborg Anbar, stærsta hérðaðs Íraks.

Ramadi fellur undan sókn ISIS
Íraski herinn hefur yfirgefið borgina eftir harða bardaga við vígamenn.

Tugþúsundir hafa flúið Ramadi
Liðsmenn hryðjuverkasamtakanna Íslamska ríkið hafa tekið borgina yfir.

ISIS-liðar undirbúa sig fyrir vörn Ramadi
Yfirvöld í Írak hafa sent þúsundir manna til borgarinnar sem safnast nú saman og undirbúa árás.

Ráðast gegn ISIS í Ramadi
Hryðjuverkasamtökin náðu borginni á sitt vald í gær.