Körfubolti

Hornacek rekinn frá Suns

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Hornacek er í atvinnuleit.
Hornacek er í atvinnuleit. vísir/getty
Tap Phoenix Suns gegn Dallas Mavericks í gær varð banabiti Jeff Hornacek, þjálfara Suns.

Hann var rekinn eftir leikinn en þetta var fjórtánda tap Suns á útivelli í röð.

Suns er aðeins búið að vinna 14 leiki í vetur en tapa 35. Meiðsli hafa farið illa með Suns í vetur en þrátt fyrir það fékk Hornacek að fjúka.

Fyrsta ár Hornacek með liðið, 2013-14, gekk vel og þá varð hann annar í kjöri á þjálfara ársins. Síðan hefur leiðin legið niður á við.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×