Úrslitahelgin hefst í dag með undanúrslitaleikjum í Coca Cola-bikar kvenna. Klukkan 17.15 eigast við Stjarnan og Fylkir og svo klukkan 19.30 er komið að stórleik tveggja efstu liða Olís-deildar kvenna; Gróttu og Hauka. Sigurvegararnir mætast í bikarúrslitaleiknum klukkan 13.30 á laugardaginn.
Fréttablaðið fékk Alfreð Örn Finnsson, þjálfara Vals, til að spá í spilin. Alfreð hefur mætt öllum liðunum á tímabilinu, sumum oftar en einu sinni og oftar en tvisvar.
Stress að vera í Höllinni
Alfreð Örn hefur meiri trú á Stjörnunni í fyrri undanúrslitaleiknum á móti Fylki þar sem mætast liðin í sjötta og áttunda sæti deildarinnar. Liðin hafa mæst tvívegis á leiktíðinni og Stjarnan unnið í bæði skiptin. Stjarnan vann átta marka sigur á heimavelli, 30-22, og þriggja marka sigur í Árbænum í seinni leik liðanna í deildinni, 26-23.
„Ég hef alveg trú á að Fylkir geti komið á óvart en ég spái Stjörnunni sigri því það er reynslumeira lið,“ segir Alfreð Örn. Fylkir hefur ekki komist í Höllina síðan liðið spilaði óvænt úrslitaleikinn á móti Stjörnunni 2008 en Stjarnan hafði þá betur.
„Það væri bara styrkur fyrir Fylki að halda þessu í jöfnum leik. Ég held að Stjarnan verði með þetta allan leikinn og stressið verði of mikið fyrir Fylki í Höllinni. Fylkisstúlkur unnu samt ÍBV um daginn sem veitir mér meiri bjartsýni fyrir þeirra hönd. Ég hef verið að bíða eftir þessum kafla hjá þeim,“ segir Alfreð.

Stjarnan er þekktari stærð: „Stjarnan er með gríðarlega sterkan varnarleik og Florentinu í markinu. Þetta eru hennar leikir. Það mæðir líka mikið á Helenu Rut. Það er gríðarlega erfitt við Stjörnuna að eiga þegar hún er heit,“ segir Alfreð Örn.
Meistararnir fara alla leið
Seinni undanúrslitaleikurinn er algjört konfekt en þar mætast liðin í efstu tveimur sætum Íslandsmótsins. Grótta er einu stigi á undan Haukum í deildinni, en liðin skildu jöfn, 21-21, þegar þau mættust á Nesinu í deildinni fyrr á tímabilinu.
„Haukarnir eiga klárlega séns. Það er rosalega erfitt að spá fyrir um þennan leik,“ segir Alfreð. Hann vill meina að markvarslan verði það sem skeri úr um sigurinn. Í marki Gróttu er auðvitað fyrrverandi landsliðsmarkvörðurinn Íris Björk Símonardóttir en hjá Haukum stendur Elín Jóna Þorsteinsdóttir vaktina. Elín Jóna varð bikarmeistari með Gróttu í fyrra.

Haukarnir eru með sterka útilínu í þeim Ramune Pekarskyte, Karen Helgu Díönudóttur og Mariu Ines Pereira en Alfreð er hrifinn af liðsheildarframlagi Gróttuliðsins.
„Á móti okkur var ég mjög hrifinn af hversu margir leikmenn Gróttu voru að skila framlagi. Gróttan spilar sóknarleikinn skynsamlega og fær framlag frá mörgum. Kári þjálfari hefur gert vel í að dreifa álagi og vera duglegur að skipta,“ segir Alfreð sem spáir Gróttu ferð í úrslitaleikinn. En hvaða lið stendur þá uppi sem meistari?
„Grótta klárar þetta á móti Stjörnunni,“ segir Alfreð Örn Finnsson.