Handbolti

Besta handboltadeild heims missir aðalstyrktaraðila sinn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Gísli Þorgeir Kristjánsson og félagar í Magdeburg ætla sér að vinna síðasta titilinn sem vinnst undir merkjum Daikin-deildarinnar.
Gísli Þorgeir Kristjánsson og félagar í Magdeburg ætla sér að vinna síðasta titilinn sem vinnst undir merkjum Daikin-deildarinnar. Getty/Martin Rose/

Þýska bundesligan í handbolta þarf að leita sér að nýjum aðalstyrktaraðila því núverandi samstarfsaðili, Daikin, hættir eftir aðeins tveggja ára samstarf.

Þýska íþróttablaðið Kicker fjallar um stöðuna á styrktaraðila bestu handboltadeildar heims og birti með mynd af íslenska þjálfaranum Guðjóni Val Sigurðssyni mjög hissa. Þessi þróun mála kemur líka mörgum á óvart.

Nýverandi samningi var lýst sem þeim stærsta í þýska handboltanum þegar stjórnendur þýsku deildarinnar kynntu Daikin sem nýjan nafngefanda sumarið 2024.

„Kaup Daikin á nafnaréttinum eru tímamót fyrir þýsku handknattleiksdeildina, og víðtæk skuldbinding framtíðar aðalstyrktaraðila okkar er einnig fjárhagslega mjög aðlaðandi og einstök í sögu þýsks handbolta,“ sagði Uwe Schwenker, forseti HBL, glaður í bragði á sínum tíma.

Fyrirtækið er eitt af leiðandi fyrirtækjum heims á sviði hitunar, loftræstingar, loftkælingar, lofthreinsunar og kælingar, með japanskt milljarðafyrirtæki að baki sér og virtist ætla að koma öflugt inn.

Fréttin hjá Kicker.Kicker.de

„Við viljum með Daikin efla alla handboltaíþróttina og þróa hana áfram á sjálfbæran hátt,“ sagði Martin Krutz, framkvæmdastjóri Daikin Airconditioning Germany, í samtali við Kicker eftir undirritun samningsins.

Fyrirtækið er sagt hafa greitt yfir fimm milljónir evra árlega fyrir þessa skuldbindingu eða 727 milljónir króna. Það er ekki aðeins mun meira en fyrri nafngefandi, Liqui Moly, greiddi, heldur einnig mjög mikill peningur í handboltaheiminum almennt.

Þrátt fyrir stór loforð um framtíðina verður nú skyndilegur endir á samstarfinu. Samkvæmt einkaheimildum kicker mun Daikin hætta sem nafngefandi HBL í lok yfirstandandi tímabils 2025/26. Þetta er mögulegt vegna ákvæðis í samningnum sem Daikin nýtir sér eftir tvö ár, í stað þess að nýta sér valrétt um þrjú ár til viðbótar.

Daikin staðfesti yfirvofandi endalok samstarfsins sem nafngefandi aðspurður, án þess þó að gefa nánari ástæður fyrir ákvörðuninni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×