
Óvinur nr. 1 - Bændur
Að sjálfsögðu minnist enginn þessarra frjálshyggjujöfra á það að flest öll lönd heimsins styðji við sinn landbúnað að sama skapi. Nei, þeir eru komnir til þess að sýna bjánum annarra landa hvernig gera skuli hlutina.
Enginn þeirra hefur almennilega útskýrt hvernig hin séríslenska landbúnaðarlausn eigi að virka. Sjálfsagt er hugsunin sú að matvæli verði að mestu flutt inn. Einhversstaðar verði þó hægt að kaupa krúttlega íslenska mjólk og lambakjöt í kjörbúðum. Það er hins vegar enginn þeirra nógu djarfur til þess að segja hlutina hreint út. Hvað veldur?
Það sem þeir segja ekki er að ef ekki væri fyrir þessa samninga þá væri matvöruverð einfaldlega þeim mun hærra út í búð. En þetta er kerfið sem við og önnur skynsöm ríki veljum til þess að tryggja matvælaframleiðslu.
Mörgum kollega minna sárnar, eðlilega, að bændur séu nú málaðir sem afætur íslenskra neytenda. Sér í lagi svíður það að stórkapítalistarnir í Samtökum verslunar og þjónustu og Félagi Atvinnurekenda ásaki aðra um að maka krókinn.
Það er svolítið eins og ef að ákveðinn stjörnulögfræðingur færi að ásaka einhvern annan um perraskap. Gróf líking já - en á því miður fullkomlega við.
Hvað vilja bændur?
Í nýjum samningum er auknu fjármagni veitt í landbúnaðinn, m.v. eldri samning. Ein ástæða þess er sú að bændur tóku á sig skerðingar í kjölfar hrunsins, eins og margir aðrir þjóðfélagshópar. Önnur ástæðan er sú að auknar aðbúnaðarkröfur þýða að margir þurfa að fara í dýrar ráðstafanir til þess að uppfylla kröfurnar.
Bændur vilja breytingar á kerfinu. Verið er að hverfa frá dýru greiðslumarkskerfi sem vonandi verður til þess að laun bændanna enda í þeirra vasa en ekki hjá bankanum. Bændur stefna á aukna hagræðingu og sú hagræðing skilar sér svo í vasa neytenda og bænda.
Bændur vilja halda áfram að framleiða góð matvæli sem uppfylla strangar kröfur um heilnæmi.
Hvað vill verslunin?
Verslunin vill bjóða neytendum upp á fjölbreytt vöruúrval, sem er mikilvægt. Það efast enginn um það að verslunin vilji gera vel við sína viðskiptavini, það vilja flestir góðir kaupmenn. En hvað er það sem raunverulega drífur verslunina. Er það ekki gróðahyggjan?
Í nýlegri skýrslu sem Bændasamtökin létu vinna kom það bersýnilega í ljós hvað verslunin hugsar fyrst og fremst um og svarar þessarri spurningu.
Ætla íslenskir neytendur að treysta þeim sem mest græða til að sjá um þeirra hagsmuni? Er það málið?
Það eru skilaboðin sem streyma frá versluninni. Treystið okkur.
Vantreystið bændum. Þeir maka bara krókinn.
Það á greinilega að sannreyna það að ef sama lygin er sögð nógu oft að þá fer fólk að trúa henni. En það breytir því ekki að þetta er kjaftæði.
Ef verslunin vill tala á þessum nótum þá svörum við í sama tón. Ungir bændur eru óhræddir við þann söng.
Skoðun

Stækkum Sjálfstæðisflokkinn
Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar

Trú- og lífsskoðunarfélög í landi sammannlegs stjórnskipulags – er samt hætta á óeiningu?
Svanur Sigurbjörnsson skrifar

Hvers á Öskjuhlíðin að gjalda?
Eyþór Máni Steinarsson skrifar

Karlveldið hefur enn ansi mörg andlit
Matthildur Björnsdóttir skrifar

Stjórnarskráin
Jörgen Ingimar Hansson skrifar

„Þetta er atriðið þar sem þið takið til fótanna…”
Marta Wieczorek skrifar

Barátta hafnarverkamanna: Leiðin að viðurkenningu sem samningsaðili
Sverrir Fannberg Júlíusson skrifar

Börn í vanda
Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar

Opið bréf til Jóns Björns Hákonarsonar
Fjóla Margrét Hrafnkelsdóttir,Guðrún Ásta Friðbertsdóttir,Karen Ragnarsdóttir,Lísa Lotta Björnsdóttir skrifar

Mýtan um óumflýjanlegan rússneskan sigur
Erlingur Erlingsson skrifar

Hinir mannlegu englar Landspítalans
Sveinn Hjörtur Guðfinnsson skrifar

Magnús Karl verður rektor fyrir okkur öll
Guðjón Reykdal Óskarsson skrifar

Leiðtoga- og stjórnendavandi: Af hverju meðalmennska í stjórnun skaðar skipulagsheildir og hvernig á að bæta úr?
Berglind Björk Hreinsdóttir skrifar

Stöndum vörð um akademískt frelsi
Björn Þorsteinsson skrifar

Samræmd próf jafna stöðuna
Jón Pétur Zimsen skrifar

VR og við sem erum miðaldra
Halla Gunnarsdóttir skrifar

Áslaug Arna - minn formaður
Katrín Atladóttir skrifar

Mannauður er lykilfjárfesting sveitarfélaga
Álfhildur Leifsdóttir skrifar

Vandi Háskóla Íslands og lausnir – II – ákvörðun launa
Pétur Henry Petersen skrifar

Djarfar áherslur – sterkara VR
Þorsteinn Skúli Sveinsson skrifar

Við höfum tækifæri, sjálfstæðismenn!
Kristín Linda Jónsdóttir skrifar

Gervigreind í læknisfræði: Nýjustu tækniframfarirnar sem gætu bjargað mannslífum
Sigvaldi Einarsson skrifar

Síðasti naglinn í líkkistuna?
Ragnheiður Stephensen skrifar

Af töppum
Einar Bárðarson skrifar

Plasttappamálið og skrækjandi þingmenn
Birgir Dýrfjörð skrifar

Áfastur plasttappi lýðræðisins?
Ingunn Björnsdóttir skrifar

Stétt með stétt?
Helgi Áss Grétarsson skrifar

Áfram kennarar!
Kristbjörg Þórisdóttir,Bragi Reynir Sæmundsson skrifar

Landshornalýðurinn á Hálsunum
Hákon Gunnarsson skrifar

Minni kvenna - lofræða gervigreindar til hinnar íslensku konu
Steinar Birgisson skrifar