Skoðun

Ofurtollar hækkaðir, auknar álögur á barnafjölskyldur og tekjulitla

Þórólfur Matthíasson skrifar
Í 13. gr. nýgerðs samnings landbúnaðarráðherra, fjármálaráðherra og bændasamtaka um starfsskilyrði nautgriparæktar segir svo, orðrétt: „Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra mun beita sér fyrir breytingu á tollalögum til að breyta magntollum á mjólkur- og undarrennudufti (sic) og ostum til sama raunverðs og gilti í júní 1995“. Starfsmenn atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins eru þegar farnir að undirbúa framkvæmd þessa ákvæðis. Þeir munu hafa skoðað tvær mögulegar útfærslur á ákvæðinu. Annars vegar með því að miða við breytingar á verði gjaldmiðla (m.v. gengi SDR) og hins vegar með því að miða við vísitölu neysluverðs. Sé miðað við gengisbreytingar ættu magntollar samkvæmt umræddri grein að hækka um 81,5%. Sé miðað við vísitölu neysluverðs ættu magntollar samkvæmt 13. grein að hækka um 148,9%. Starfsmenn atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins telja 81,5% vera of litla hækkun og leggja til að umræddir magntollar hækki um 148,9% að verðgildi!

Nú er það svo að miklar hækkanir einstakra kostnaðarliða þurfa ekki að skipta miklu máli sé vægi viðkomandi kostnaðarliðar í heildarkostnaði lítið. Áhrif magntollsins til hækkunar endanlegs útsöluverðs er því breytilegt eftir því hversu dýrir ostarnir eru hjá erlendum birgjum.

Að minni ósk reiknaði forstjóri Haga út hvaða áhrif lofuð hækkun magntollanna um 148,9% hefði á kostnaðarverð erlendra osta sem eru til sölu í kæliborðum fyrirtækisins. Niðurstaðan kemur fram í meðfylgjandi töflu. Til skoðunar eru fjórir ostar, Mozzarella-ostur og smur­ostur (Buko) sem eru í ódýrari kantinum. Tveir dýrir ostar eru einnig til skoðunar, Parmesan annars vegar og Camembert hinsvegar.





Af töflunni má auðveldlega ráða að ódýrari ostarnir (Mozzarella og Buko) hækka hlutfallslega mun meira en hinir dýrari (Camembert og Parmesan). Nú skiptir kannski ekki öllu máli þó samkeppnisstaða Mozzarella osta á Íslandi sé skekkt samanborið við Parmesan. Það sem er alvarlegt og alþingismenn og kjósendur ættu að athuga vel er sú staðreynd að tollabreytingin mun því veita ódýrustu íslenskt framleiddu ostunum meira skjól en þeim íslenskum ostum sem dýrastir eru. Það má reikna með því að í kjölfar tollahækkunarinnar muni íslenskir ostar sem ætlaðir eru til daglegs brúks, brauðostar og skólaostar, hækka umfram aðra osta og aðrar mjólkurvöru. Ég læt lesendum eftir að meta hvaða þjóðfélagshópar verða fyrir mestum búsifjum af völdum þessara hækkana. Vonandi tekst Alþingi að koma í veg fyrir að umræddur samningur öðlist gildi.




Skoðun

Sjá meira


×