Sigurður Ingi Jóhannsson, forsætisráðherra, hefur boðað forystumenn stjórnarandstöðunnar á fund sinn á morgun þar sem hann mun væntanlega ræða við þá um málalista nýrrar ríkisstjórnar sem tók við í liðinni viku.
Ekki liggur fyrir hvort að ráðherrann muni hitta forystumennina saman eða hvern fyrir sig en heimildir fréttastofu herma þó að Sigurður Ingi vilji frekar hitta þá einn og einn en alla saman. Það er þó spurning hvort að slík fundahöld hugnist stjórnarandstöðunni sem gæti mögulega frekar viljað mæta sameinuð til leiks.
Í samtali við Vísi í morgun sagði Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, að stjórnarandstaðan legði áherslu á að settur yrði dagur fyrir kosningar í haust sem allra fyrst. Þá væri jafnframt mikilvægt að fá fram málalista ríkisstjórnar sem fyrst.
Uppfært klukkan 16:07: Forystumenn stjórnarandstöðunnar munu funda saman með forsætisráðherra í fyrramálið.
Sigurður Ingi boðar stjórnarandstöðuna á fund

Tengdar fréttir

Ráðstefna um efnhagslífið á Íslandi í skugga Panama-skjala: Bjarni Benediktsson á meðal ræðumanna
Ráðstefna Euromoney um Ísland sem fjárfestingarkost fer fram í London á morgun.

Panama-skjölin settu svip sinn á fyrsta fund ríkisstjórnar Sigurðar Inga
Fyrsti ríkisstjórnarfundur nýs ráðuneytis Sigurðar Inga Jóhannssonar, forsætisráðherra, fór fram í morgun.

Óljós dagskrá þingfunda næstu daga
Þingflokksfundadagur er á Alþingi í dag og er það samkvæmt starfsáætlun þingsins en klukkan 11 munu þingflokksformenn funda með Einari K. Guðfinnssyni, forseta þingsins.