Aðdáendaklúbbur Svía var sá síðasti til þess að greiða atkvæði. Hér má sjá niðurstöður þeirra en Svíar gáfu Gretu þrjú stig.
Aðdáendasamtökin spá Frakklandi sigri en Frakkarnir fá 425 stig alls í kosningunni. Rússland fylgir fast á hæla Frakklands með 392 stig. Þetta eru sömu lönd og veðbankar telja að berjast muni um titilinn.
Það er hinn sykursæti Amir sem syngur lag Frakklands en lagið er flutt bæði á frönsku og ensku. Það fjallar um að vera týndur en að fá styrk frá sérstökum einstaklingi. Amir hefur tekið þátt í hæfileikaþáttum á borð við, A Star is Born í Ísrael og The Voice í Frakklandi. Hér að neðan má hlusta á lag Frakka í ár.
Íslenska lagið fékk 44 stig í heildina en það voru aðdáendur í Andorra, Belgíu, Tékklandi, Danmörku, Írlandi, Lúxemborg, Hollandi, Spáni, Sviss, Bretlandi og Rússlandi sem gáfu Íslandi stig. Tékkar virðast vera sérstaklegar hrifnir af framlagi Íslands en tékkneskir aðdáendur gáfu „Hear them calling“ heil tíu stig. Aðeins er rétt rúm vika í að Greta stigi á svið í Stokkhólmi þar sem keppnin fer fram en hún er sextánda á svið í fyrri undanúrslitariðli.
Hér má sjá niðurstöðurnar í heild sinni.
Veðbankar eru ekki örlítið neikvæðari í garð íslenska framlagsins og aðdáendahóparnir en samkvæmt vefsíðunni Oddschecker, sem tekur saman líkur frá veðbönkum víðsvegar um internetið, mun Greta hafna í 19 eða 20. sæti.