Willum Þór tekur við KR-liðinu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. júní 2016 17:57 Willum Þór Þórsson. Vísir/Vilhelm
Willum Þór Þórsson verður næsti þjálfari KR í Pepsi-deild karla í fótbolta og tekur við liðinu af Bjarna Guðjónssyni sem var rekinn í gær. Willum Þór stýrði fyrstu æfingunni hjá KR í kvöld. Það verður viðtal við Willum Þór hjá Kjartani Atla Kjartanssyni í íþróttapakkanum í kvöldfréttum Stöðvar tvö. Willum sagðist í viðtali við Vísi í gær vera tilbúinn til viðræðna við vini sína í Vesturbænum. Arnar Gunnlaugsson verður aðstoðarmaður Willums Þórs en fyrsti leikur KR-liðsins undir þeirra stjórn verður Evrópuleikur á móti norður-írska liðinu Glenavon á KR-vellinum á fimmtudaginn. Fyrsti deildarleikurinn verður aftur á móti á móti Víkingur Ólafsvík sunnudaginn 10. júlí. Þetta er í annað skiptið sem Willum Þór þjálfar KR-liðið en hann gerði liðið tvisvar sinnum að Íslandsmeisturum þegar hann stýrði liðinu frá 2002 til 2004. KR varð meistari 2002 og 2003 með Willum Þór sem þjálfara en seinna tímabilið var Arnar leikmaður hjá honum. Willum Þór herði Valsmenn einnig að Íslandsmeisturum sumarið 2007. Willum Þór Þórsson er að fara að taka við sínu uppeldisfélagi en hann lék á sínum tíma 120 leiki með KR í efstu deild og skoraði í þeim 16 mörk. Willum Þór þjálfaði síðast lið Leiknis í 1. deildinni sumarið 2012 en hann var síðast aðalþjálfari liðs í Pepsi-deildinni sumarið 2011 þegar hann þjálfaði lið Keflavíkur. Willum Þór var hinsvegar aðstoðarþjálfari Guðmundar Benediktssonar hjá Breiðabliki sumarið 2014 en hann hefur verið Alþingismaður frá árinu 2013. Willum Þór tekur vissulega við KR-liðinu á erfiðum tímapunkti. Vesturbæjarliðið er í 9. sæti með 9 stig og aðeins tveimur stigum frá fallsæti en KR-ingar hafa tapað þremur leikjum í röð í deildinni og fimm af síðustu sex leikjum sínum í öllum keppnum.
Pepsi Max-deild karla Tengdar fréttir Willum Þór: „Ég er alltaf til í að ræða við vini mína í Vesturbænum“ „Þetta er náttúrulega flottasti klúbburinn,“ segir Willum Þór. 25. júní 2016 14:15 Mest lesið Umræðan væri önnur ef um Rashford væri að ræða en ekki Grealish Enski boltinn Beckham kærður í tengslum við mál Diddy Sport Kyssti mótherja eftir að hafa sleikt annan um daginn Sport Rotaðist eftir að hafa dottið í miðju hlaupi Sport Baðst afsökunar á tæklingunni í Garðabænum Íslenski boltinn Liverpool tilkynnir um risasamning við Adidas Enski boltinn Keane gagnrýndi Arsenal: „Hvað gerir annað sætið fyrir þig? Þú vilt vinna titla“ Enski boltinn Sjáðu markið hans Alberts gegn Napoli Fótbolti Stjórnarformaður BBC vill breytingar á Match of the Day Enski boltinn Ter Stegen nafngreinir blaðamenn og segir þá lygara Fótbolti Fleiri fréttir Kveður Selfyssinga óvænt: „Það er synd að kveðja á þennan hátt“ Baðst afsökunar á tæklingunni í Garðabænum Skrautlegt mark, glæsimark og allt brjálað í sigri KR „Ljótasta tækling ársins komin í íslenska boltanum“ FH sækir liðsstyrk út fyrir landsteinana Trúir á Óla Kristjáns og Jesú Krist Í skýjunum með að hreppa Þórdísi Hrönn Níu mörk þegar KR vann ÍBV QPR vildi Þorra en Fram sagði nei Fylkismenn komust áfram á kostnað Íslandsmeistara Blika Valskonur með fullt hús og markatöluna 15-1 Thomsen mættur aftur í íslenska boltann Pedersen með tvö og Valsmenn í undanúrslit Auðun tekur við Þrótti Vogum „Fjölskyldan spurði hvort ég gæti ekki fundið hlýrra land“ Sveinn Margeir mögulega ekkert með Víkingum í sumar Víðir með Vestmannaeyingum í sumar Daði Berg frá Víkingi til Vestra Víkingar skipta um gír Ísfirðingar fá hávaxinn eistneskan framherja Kjartan Kári verður áfram hjá FH eftir að hafa hafnað Val Magnús Orri tekur við formannsstólnum af Páli Atli Sigurjóns framlengir við KR Yngri bróðir Benoný Breka yfirgefur líka KR FH-ingar æfðu á grasi í febrúar Síðhærði Færeyingurinn snýr aftur norður Kemur meiddur til Víkings en þó á miklu betri stað Kveðst viss um eftirsjá Gylfa: „Hefðum unnið mótið í fyrra með hann“ ÍA fær Baldvin frá Fjölni Útlit fyrir að Kjartan fylli skarð Gylfa hjá Val Sjá meira
Willum Þór: „Ég er alltaf til í að ræða við vini mína í Vesturbænum“ „Þetta er náttúrulega flottasti klúbburinn,“ segir Willum Þór. 25. júní 2016 14:15