Sport

Ásdís bætti Íslandsmetið sitt í Sviss

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ásdís bætti Íslandsmetið sitt um 1 cm.
Ásdís bætti Íslandsmetið sitt um 1 cm. vísir/anton
Ásdís Hjálmsdóttir bætti í dag Íslandsmet sitt í kúluvarpi innanhúss á svissneska meistaramótinu sem fór fram í Magglingen.

Ásdís kastaði kúlunni 15,96 m og bætti Íslandsmetið sitt um 1 cm.

Ásdís var nálægt því að ná lágmarkinu fyrir EM en það er 16,30 m.

Hún gerir ekki fleiri atlögur að lágmarkinu í kúluvarpinu heldur horfir til vetrarkastmóts Evrópu sem fer fram á Kanaríeyjum 11.-12. mars. Þar keppir Ásdís í spjótkasti, sinni aðalgrein.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×