Það er komið að stóru stundinni. Gunnar Nelson snýr aftur í búrið í kvöld þegar hann mætir Bandaríkjamanninum Alan Jouban á UFC-bardagakvöldinu í O2-höllinni í London.
Eftir tíu mánaða fjarveru röltir Gunnar rólegur inn í búrið í kvöld og reynir að vinna annan bardagann í röð eftir sannfærandi sigur á Albert Tumenov á síðasta ári. Jouban vill alls ekki glíma við Gunnar en okkar maður óttast ekki standandi bardaga. Hann hefur þróast hratt í rétt átt standandi eins og sást í síðasta bardaga.
Sjá einnig:Gunnar Nelson: Svona er þetta ferðalag
„Ég er með minn eigin stíl og ég held að fólk hafi bara ekki séð neitt sérstaklega mikið af honum. Hann er alltaf að þróast. Ég fékk aðeins að nota hann í síðasta bardaga sem gaf mér líka tilfinningu fyrir því hvernig hann virkar í bardaga því það er öðruvísi að æfa þetta en í bardaga,“ segir Gunnar.
Jouban byrjar bardaga sína frekar hægt sem er löstur á hans leik. Gunnar mun nýta sér það.
„Mér finnst það líklegt. Ég fer yfirleitt inn með sterka byrjunarárás. Mér finnst það skipta máli og það er líka stíllinn minn. Ég reyni að fara inn og klára bardagana mína þegar ég sé opnanir. Þær eru mjög víða og svo býr maður til opnanir. Ég á sennilega eftir að byrja nokkuð sterkt,“ segir hann.
Menn í kringum Gunnar telja að tíminn sé núna fyrir hann að gera árás á heimsmeistaratitilinn. Hann tekur undir það að vissu leyti en ætlar að afgreiða Jouban fyrst.
„Ég er ekkert að fara að hætta núna. Ég er að vinna mig upp og svona er þetta ferðalag. Ég horfi ekkert framhjá Alan en ég ætla að reyna að ná tveimur öðrum bardögum á árinu. Að sjálfsögðu ætla ég að reyna að sigra þá og ég gæti vel trúað að þá gæti maður barist um titilinn á næsta ári,“ segir Gunnar Nelson.
Bardaginn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport HD en útsending hefst klukkan 21.00.
Ekki missa af neinu tengdu bardaga Gunnars Nelson og Alan Jouban. Vísir er í London og færir ykkur allar nýjustu fréttirnar af Gunnari og bardagakvöldinu í O2-höllinni á laugardaginn. Fylgdu okkur á Facebook, Twitter og Snapchat (sport365).
Gunnar: Get vel trúað að ég berjist um titilinn á næsta ári
Tengdar fréttir

Gunnar Nelson: Svona er þetta ferðalag
Gunnar Nelson telur að hann gæti fengið titilbardaga á næsta ári ef allt gengur vel. Hann snýr aftur í búrið eftir tíu mánaða fjarveru í kvöld er hann mætir Bandaríkjamanninum Alan Jouban. Sá kappi er sýnd veiði en ekki gefin.

Búrið: Gunnar er með þetta skandinavíska, slutty viking útlit
Andstæðingur Gunnars Nelson á morgun, Alan Jouban, er fyrirsæta hjá Versace sem kann svo sannarlega að berja frá sér.

Gunnar þurfti að standa úti í kuldanum vegna brunaviðvörunnar á hótelinu
Gunnar Nelson og Alan Jouban þurftu að standa úti í kuldanum á meðan athugað var hvað var í gangi.

Kavanagh: Gunnar lærði af töpunum
John Kavanagh, þjálfari Gunnars Nelson, er ánægður með hvernig Gunnar nýtti töpin sín og varð betri eftir þau.

Dan Hardy: Mikið undir hjá Gunnari Nelson sem er engum líkur
Fyrrverandi UFC-stjarna og aðallýsandi UFC í Evrópu er mikill aðdáandi Gunnars Nelson.

Sjáið Gunnar og Jouban stíga á vigtina | Myndband
Nú er aðeins rétt rúmur sólarhringur í að Gunnar Nelson og Alan Jouban mætist í búrinu í O2-höllinni í London.