Stjórnarskráin brotin við útgáfu laxeldisleyfa að mati lögmanna eigenda veiðiréttar Þorbjörn Þórðarson skrifar 6. apríl 2017 19:30
Matvælastofnun braut íslensku stjórnarskrána þegar hún gaf út leyfi til laxeldis í sjókvíum að mati lögmanna eigenda veiðiréttinda. Nánast allt laxeldið á Íslandi er í eigu norskra eldisfyrirtækja og stjórnir veiðifélaganna við Húnaflóa segja að norsku fyrirtækin skeyti engu um mengun náttúrunnar. Íslensk stjórnvöld hafa ekki haft neina stefnu þegar kemur að ræktun á laxi í sjókvíum. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir núverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra viðurkenndi þetta í viðtali okkar á mánudag en stefnuleysið varð ekki á hennar vakt. Í sumar skilar starfshópur ráðherra skýrslu sem forveri hennar lét vinna. Í millitíðinni hafa fyrirtækið eins og Arnarlax nýtt sér stefnuleysi stjórnvalda til vaxtar. Áttatíu og sex prósent hlutafjár í Arnarlaxi eru í eigu norska fyrirtækisins Kviteholmen A/S. Tryggingamiðstöðin á 11,6 prósent en aðrir minna. Í deilu um sjókvíalaxeldið takast á hagsmunir laxeldisfyrirtækja og hagsmunir eigenda veiðiréttar í sjó, vötnum og ám sem hafa áhyggjur af áhrifum laxeldis í sjókvíum á lífríki villtra fiska. Ef eigendur veiðiréttar hafa rétt fyrir sér mun laxeldi í sjókvíum hafa mjög skaðlegar afleiðingar fyrir lífríkið.Einar K. Guðfinnsson formaður Landssambands fiskeldisstöðva.Vísir/Þorbjörn ÞórðarsonVeiðifélög við Húnaflóa lýsa þungum áhyggjum af vexti fiskeldisstöðva um land allt. Í ályktun þeirra segir meðal annars: „Stjórnirnar benda á, að nánast allt laxeldið er í meirihlutaeigu norskra eldisfyrirtækja sem eru að sækja í ókeypis afnot hafsins í óspilltum íslenskum fjörðum og sem virðast engu skeyta um mengun náttúrunnar og eyðileggingu eigna annarra. Nú þegar allt nýtt eldi í opnum sjókvíum með ógeltum laxi hefur verið sett á ís í Noregi, keppast þeir hinir sömu við að helga sér ókeypis íslenskan sjó, áður en Íslendingar átta sig á þeim hrikalega umhverfisskaða sem þessi stóriðja mun valda að óbreyttu.“ Blóðsýking sem kom upp í eldislaxi í Færeyjum var í sjókvíum alveg eins og þeim sem Arnarlax notar.Er einhver leið að vita það ef það sleppur ræktaður lax út í náttúruna? „Það á nú að vera hægt í flestum tilvikum held ég. Auðvitað er ekki hægt að útiloka að einhver tilvik komi upp þar sem menn vita þetta ekki nákvæmlega. Stóra málið er að fyrirtækin sjálf eru með sitt innra eftirlit. Fyrirtækin geta fylgst með kvíunum í gegnum myndavélar og slíkt samtímaeftirlit skiptir miklu máli fyrir fyrirtækin sjálf. Þau hafa beinan fjárhagslegan hag af því,“ segir Einar K. Guðfinnsson formaður Landssambands fiskeldisstöðva. Náttúrvernd 1 málsóknarfélag hefur höfðað mál á hendur Arnarlaxi og Matvælastofnun til ógildingar á leyfum sem Matvælastofnun veitti Arnarlaxi til laxeldis í sjókvíum. Meðal annars er byggt á því að samkvæmt 2. ml. 40. gr. stjórnarskrárinnar geti íslenska ríkið ekki afhent eignar- eða afnotarétt að hafsvæði við landið, sé ekki fyrir hendi sérstök lagaheimild til hinnar tilteknu ráðstöfunar hafsvæðisins. „Við útgáfu starfs- og rekstrarleyfanna naut ekki heimildar í settum lögum til hinnar tilteknu afhendingar afnotaréttar hafsins til stefnda Arnarlax hf.,“ segir í stefnunni. Þá er í stefnunni vísað til brots á varúðarreglu í 9. gr. laga um náttúruvernd en í stefnunni segir: „Í þessu tilviki er hætta á verulegum og óafturkræfum náttúruspjöllum og því er ekki hægt að beita skorti á vísindalegri þekkingu sem rökum til að láta hjá líða að grípa til skilvirkra aðgerða sem koma í veg fyrir spjöllin eða draga úr þeim. Náttúruvernd hefur boðað fleiri dómsmál vegna laxeldisins. Á sama tíma eru mjög mörg leyfi í umsóknar- og umsagnarferli hjá Matvælastofnun.“ Náttúruvernd hefur boðað fleiri dómsmál vegna laxeldisins og hefur þegar höfðað mál í gegnum félagið Náttúrvernd 2 gegn Matvælastofnun og Löxum Fiskeldi ehf. Á sama eru mörg leyfi í umsóknar- og umsagnarferli hjá Matvælastofnun. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra sagði í fréttum okkar á mánudag að hún vildi hægja á útgáfu nýrra leyfa til laxeldis í sjókvíum á meðan starfshópur um framtíðarstefnu stjórnvalda í laxeldi er að störfum. Starfshópurinn á að skila niðurstöðum sínum í ágúst næstkomandi.
Mest lesið Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent Úkraína fái tryggingar sem jafngilda 5. greininni Erlent Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Erlent Óvíst hvort Guðmundur Ingi snúi aftur í ráðuneytið Innlent Rannsaka hvort feðgarnir fengu herþjálfun á Filippseyjum Erlent Hækka hitann í Breiðholtslaug Innlent Meðalbílaleigubíllinn verði fyrir mestum áhrifum Innlent Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Innlent Segjast hafa myrt átta sæfarendur til viðbótar Erlent Fjölgun landsmanna það eina sem hafi komið í veg fyrir tekjufall Rúv Innlent Fleiri fréttir Hækka hitann í Breiðholtslaug Meðalbílaleigubíllinn verði fyrir mestum áhrifum Óvíst hvort Guðmundur Ingi snúi aftur í ráðuneytið Fjölgun landsmanna það eina sem hafi komið í veg fyrir tekjufall Rúv Umferðarslys á Breiðholtsbraut Orð gegn orði um samskipti innan almannavarnarnefndar Skýrslan ekki til neins ef ekki verði brugðist við Faðir sem missti þrjú börn í Súðavík tjáir sig um uppgjör rannsóknarnefndar Bíll bilaði og Hvalfjarðargöngum lokað um stund Kanna áhuga á mögulegu framboði Guðlaugs í borginni Vistunin sé kerfisbundið brot á mannréttindum Hvorki álit né vangaveltur um ábyrgð einstaklinga í skýrslunni Þau eru tilnefnd sem maður ársins Lögðu hald á sautján skotvopn og skotfæri um helgina Stór mál standa enn út af Í takt við það sem verið hefur Aðalsteinn gefur kost á sér í oddvitasæti og fer í leyfi Bein útsending: Kynna skýrslu um snjóflóðið í Súðavík Þurftu að lenda í Liverpool á leið til Manchester Súðavíkurskýrslan afhent forseta Alþingis Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Heyrði skothvellina á Bondi strönd Vinstri beygjan bönnuð Sinntu fimmtán málum í tengslum við Iceguys tónleikana „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Magnea sækist eftir 2.-4. sæti á lista Samfylkingar Komu sér fyrir í ruslageymslu og kveiktu þar eld Vinna að því að koma upp efnagreiningu í neyslurýmum Ekki mótfallin Fljótagöngum en ekki með nýrri forgangsröðun Fleiri lífeyrisþegar og leikskólaforeldrar sem þurfa jólaaðstoð Sjá meira