Þetta kemur fram í tilkynningu frá Umhverfisstofnun. Í bréfi Umhverfisstofnunar segir að jákvæð þróun hafi orðið varðandaði ráðstafanir United Silicon að undanförnu hvað varðar greiningu á vandamálum verksmiðjunnar og leiðum til úrbóta.
Engu að síður telur Umhverfisstofnun nausðynlegt að fullnægjandi upplýsingar liggi fyrir um orsök lyktarmengunar sem kvartað hefur verið yfir og ráðstafanir til úrbóta áður en reglubundinn rekstur ljósbogaofns verði heimilaður á ný.
Þurfa að tilkynna íbúum með fyrirvara verði ofninn gangsettur
Umhverfisstofnun fyrirskipaði þann 18. apríl síðastliðinn að starfsemi kísilverksmiðjunnar skyldi stöðvuð en forsvarsmenn United Silicon fengu frest til gærdagsins til þess að andmæla ákvörðun Umhverfisstofnunar.
Umhverfisstofnun vinunr nú að útttekt á verksmiðjunni og mun einnig heimila United Silicon að gangsetja ljósbogaofninn vegna frekari greiningar lyktarmengunar og mati á mögulegum úrbótum.
Í bréfinu segir að tilkynna skuli Umhverfisstofnun um tímasetningu fyrirhugaðrar upppkeyrslu ofnsins. Mikilvægt sé að við tímasetningu slíkrar gangsetningu sé miðað við hagstæða vindátt til að draga úr áhrifum á íbúa.
Þá muni Umhverfisstofnun hafa eftirlit með uppkeyrslunni og er tímasetning hennar því háð samþykki stofnunarinnar. Þá þarf United Silicon einnig að tilkynna íbúum Reykjanesbæjar um fyrirhugaða uppkeyrslu með fyrirvara.
Stöðvun á starfsemi United Silicon varir þar til skýringar liggja fyrir um orsakir lyktarmengunar og nægjanlegar úrbætur framkvæmdar að mati Umhverfisstofnunar, að því er segir í bréfinu sem nálgast má hér fyrir neðan.