Heimir Guðjóns: Pínu þreytumerki í liðinu Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 29. júlí 2017 17:03 Heimir Guðjónsson, þjálfari FH. vísir/eyþór
Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, var að vonum ánægður með 1-0 sigur sinna manna á Leikni frá Reykjavík í undanúrslitum Borgunarbikars karla. „Gríðarlega ánægður með að komast í bikarúrslitaleikinn. Þetta var erfiður leikur og Leiknismenn voru gríðarlega vel skipulagðir, spiluðu sterkan varnarleik og beittu skyndisóknum. Okkur gekk erfiðlega að brjóta þá á bak aftur en Lenny kláraði þetta fyrir okkur, fínt að þurfa ekki að fara í framlengingu,“ sagði Heimir eftir leikinn.Sjá einnig: Umfjöllun og viðtöl: FH - Leiknir R. 1-0 | Lennon skaut FH í úrslitaleikinn Steven Lennon skoraði sigurmarkið á síðustu mínútu uppbótatímans og bjargaði FH-ingum frá því að þurfa að fara í framlengingu. Heimir var að vonum mjög ánægður með það, enda mikið álag verið á hans liði að undanförnu og mikilvægur Evrópuleikur fram undan í næstu viku. „Það var eitthvað sem við vildum ekki (að fara í framlengingu). Þegar staðan er 0-0 þá þarf lítið að gerast, en fínt að klára þetta.“ „Það voru pínu þreytumerki á þessu hjá okkur, það var erfitt ferðalag til baka frá Slóveníu, mér fannst það sitja aðeins í liðinu. En næsti leikur er ekki fyrr en á miðvikudaginn þannig að við ættum að vera búnir að jafna okkur fyrir þann leik.“ FH mætir ÍBV í úrslitum bikarsins og býst Heimir við hörkuviðureign. „Við spiluðum við þá í Eyjum og það var hörku leikur sem við rétt náðum að merja sigur 1-0. Við vitum það að Eyjamenn eru með mjög gott lið og það verður hörku leikur.“
Pepsi Max-deild karla Tengdar fréttir Umfjöllun og viðtöl: FH - Leiknir R. 1-0 | Lennon skaut FH í úrslitaleikinn Steven Lennon skoraði sigurmarkið á síðústu mínútu uppbótatímans í undanúrslitaleik FH og Leiknis R. í Kaplakrika í dag. FH mæta ÍBV í úrslitaleiknum 12. ágúst 29. júlí 2017 16:30 Mest lesið Sagði fyrst nei við beiðni Kjartans: „Menn hálf skammast sín“ Körfubolti Mætti til leiks berfættur og ber að ofan í snjókomunni Sport „Í dag er dagurinn sem þú fæddist, í dag er dagurinn sem þú munt deyja“ Enski boltinn Barði sig til blóðs eftir tap á HM Sport Breyttist úr hetju í skúrk: Rekinn út af fyrir að ögra LeBron Körfubolti Þórir í skýjunum: „Sit með lítið tár í augnkróknum“ Handbolti „Sé ekkert annað en að dýrasti leikmaður deildarinnar verði áfram á bekknum“ Enski boltinn Maresca hafi tekið blaðsíðu úr bók Salah og gert sér óleik Enski boltinn Fyrirliði Newcastle eftir tapið fyrir Sunderland: „Þetta er svo vandræðalegt“ Enski boltinn „Finnst þér ekki eins og hann sé þjakaður af pressu yfir því hvað hann sé lélegur?“ Enski boltinn Fleiri fréttir Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Strákarnir í 2. flokki Vals þeir einu sem ekki spila fyrir áramót Dæturnar vildu norður: „Mun alltaf gera allt fyrir þær“ Stjarnan sækir markvörð í 3. deildina „Ég var orðinn algjörlega bugaður“ Jónatan áfram á Hlíðarenda: „Var alltaf jákvæður fyrir því að framlengja“ Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull „Ég elska þig Ísland, takk fyrir allt!“ Sextán ára með fernu fyrir meistara Víkings Valur dregur sig úr Bose-bikarnum „Sagði bara við hann: Djöfulsins fíflið þitt“ Yngir upp í allt of gamalli deild Þróttur keypti Adam Árna frá Grindavík Ástæðan fyrir því að Þorlákur hætti: „Ég var ekki hrifinn af þessu“ Þorlákur sagði upp störfum hjá ÍBV Þrjár ungar KR-konur leggja skóna á hilluna Murielle elti Óskar í Garðabæinn Segir dökk ský yfir íslensku knattspyrnuhreyfingunni Rúnar sækir gamlan félaga sinn inn í þjálfarateymið Fór frá því að mæta á landsliðsæfingu í það að vera fárveikur í öndunarvél Jasmín kom til að vinna titla og er farin frá Val Framlengir við Breiðablik og nálgast fimm hundruð leikina Sjá meira
Umfjöllun og viðtöl: FH - Leiknir R. 1-0 | Lennon skaut FH í úrslitaleikinn Steven Lennon skoraði sigurmarkið á síðústu mínútu uppbótatímans í undanúrslitaleik FH og Leiknis R. í Kaplakrika í dag. FH mæta ÍBV í úrslitaleiknum 12. ágúst 29. júlí 2017 16:30