Margir ráku upp stór augu þegar hún var mynduð á leið sinni í Daily Fashion Front Row galakvöldið en hún klæðist þunnum leggingsbuxum og magatopp, en buxurnar eru svo þunnar að nærfötin sjást greinilega. Í raun eins og hún sé í nælonsokkabuxum og gleymdi hreinlega að smella sér í kjól/bol yfir.
Kannski er það vegna þess að flassið frá myndavélum er svona mikið að nærfötin sjást svona greinilega? En ef við þekkjum raunveruleikastjörnuna rétt þá er þetta dress útpælt, mögulega næsta trend í uppsiglingu? Það mundi allavega spara okkur smá tíma á morgnana ...


