Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, fyrrum formaður flokksins og forsætisráðherra, er leiðtogi Framsóknarmanna í kjördæminu sem er frá fornu fari eitt helsta vígi flokksins á landsvísu. Erfitt er að túlka yfirlýsingu Þórunnar á annan veg en þann að þarna sé um að ræða tilraun flokksforystunnar til að ryðja hinum afar umdeilda Sigmundi endanlega úr vegi og losa sig við hann.
Telja ólíklegt að komast í ríkisstjórn með Sigmund innanborðs
Ekki hefur gróið um heilt milli þeirra Sigmundar Davíðs og Sigurðar Inga Jóhannssonar eftir að sá síðarnefndi sigraði í blóðugum formannsslag. Reyndar hafa átök þeirra á milli einkennt flokksstarfið. Sigmundur Davíð hefur átt afar erfitt með að sætta sig við það að vera ekki formaður flokksins og því afar ólíklegt að hann muni sætta sig við að skipa annað sætið á lista fyrir austan. Og, menn telja engar líkur á því að hann muni láta sæti sitt af hendi þegjandi og hljóðalaust.

Draumurinn um það að ganga samstiga til kosninga
Vísir fjallaði ítarlega um stöðu flokkanna nú fyrir komandi kosningar, sem eru handan horns. Þar var ekki fjallað sérstaklega um Framsóknarflokkinn, en í vikunni birtist hins vegar frétt um það að Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir borgarfulltrúi, ætli að söðla um og færa sig yfir í landsmálin. Rætt var við Guðfinnu af þessu tilefni og hún lagði uppúr því að Framsóknarmenn mæti samstiga til kosninga. Í ljósi atburða dagsins er ýmislegt athyglisvert sem hún segir, en Guðfinna hefur verið einarður stuðningsmaður Sigmundar Davíðs. Hún gerði ráð fyrir sömu flokksforystunni og er.
En, það verður ekki komist hjá því að huga að innabúðarmálum hjá Framsókn fyrir þessar kosningar. Þessi leikur Þórunnar setur allt í uppnám hvað það varðar og ruggar bátum. Þó deila megi um hversu samstiga Framsóknarflokkurinn er með Sigmund Davíð innanborðs. Og þar stendur reyndar hnífurinn í kúnni.
Hyskni Sigmundar Davíðs eitur í beinum Framsóknarmanna
Heimildir Vísis herma að afar ólíklegt megi heita að Þórunn hafi tekið ákvörðun sem þessa án samráðs við flokksforystuna og Sigurð Inga Jóhannsson, formann flokksins. Tvennum sögum fer þó af því. Raddir að austan herma að veruleg óánægja sé með störf Sigmundar Davíðs, segja að hann hafi ekki sinnt starfi sínu. Dræm mæting hans á þingfundi er eitur í beinum Austfirðinga.
Heimildarmenn Vísis hafa nefnt í eyru blaðamanns Vísis að hér sé ekki um neitt djúphugsað plott af hálfu meints flokkseigendafélags að ræða. Og sú nálgun, að það þurfi leyfi flokksforystunnar að fara gegn honum henti sýn Sigmundar Davíðs og kenningum.

„Ég mun aldrei gefast upp fyrir skíthælum“
Vísir hefur ítrekað reynt að ná tali af Sigmundi Davíð í dag en án árangurs. Þá er formaður flokksins, Sigurður Ingi Jóhannsson, fastur á fundi flokksformanna. Þeir Framsóknarmenn sem Vísir hefur rætt við telja afar ólíklegt að Sigmundur Davíð víki þegjandi og hljóðalaust. Hann hefur gefið það út afdráttarlaust að hann ætli að halda áfram. Og eru eftirminnileg ummæli hans fyrir um ári rifjuð upp í því samhengi.
„Ætli þetta sé ekki þrjóska. Ég mun aldrei gefast upp fyrir skíthælunum sem hafa þráð að drepa mig frá því ég byrjaði í pólitík. Ef þeim tekst ætlunarverk sitt verður það aðeins með því að þeim takist að fá framsóknarmenn sjálfa, fólkið sem ég hef verið að vinna fyrir til að sjá um aftökuna.“
Það stefnir því í blóðugan slag innan Framsóknarflokksins nú þegar korter er í kosningar þó þar á bæ leggi menn áherslu á að vera samstiga.