Konan starfaði við mjaltir á kúabúi að Grund í Eyjafirði frá 1. september 2013 þar til samið var um starfslok hennar þann 11. júlí árið 2015. Sá konan sjálf um að skrá vinnutíma sína í dagbók búsins og þá bar hún einnig ábyrgð á að koma upplýsingum um vinnustundir til yfirmanns síns í lok hvers mánaðar.
Ekki gerður skriflegur ráðningarsamningur
Samkvæmt launaseðili konunnar frá maí 2014 voru samtals 75,6 yfirvinnutímar dregnir frá launum hennar vegna apríl mánaðar og 5,5 tímar vegna maímánaðar 2014. Leitaði konan réttar síns og komst að þvi að útreikningur launa hennar hafi ekki verið samkvæmt kjarasamningum.Ekki var gerður skriflegur ráðningarsamningur við konuna og var deilt um hvort samið hefði verið um rofinn vinnutíma. Í kjarasamingum um kaup og kjör starfsmanna sem vinna við almenn landbúnaðarstörf er kveðið á um að í ráðningarsamningi skuli koma fram ef sérstaklega væri samið um vinnutíma, meðal annars rofinn vinnutíma. Talið var að það væri á herðum Ljósaborgar að sanna hvort samið hefði verið eða ekki og hafi það ekki verið gert.
Sem fyrr segir er fyrirtækinu skylt að borga konunni tæpar 1,7 miljónir króna og þá var því einnig gert að greiða konunni samtals 1,5 milljónir í málskostnað bæði í héraðsdómi og fyrir Hæstarétti.