Björn Ingi kaupir Argentínu steikhús Sigurður Mikael Jónsson skrifar 6. október 2017 06:00 Argentína steikhús opnaði í október 1989. Annar eigenda frá 1990 hefur verið Kristján Þór Sigfússon en ekki lengur.
Björn Ingi Hrafnsson er orðinn eigandi eins rótgrónasta veitingahúss miðborgarinnar, Argentínu steikhúss. Þetta staðfesti hann í samtali við Fréttablaðið. Argentína steikhús var fyrr á þessu ári flutt yfir á kennitölu félagsins Bos ehf. sem stofnað var í febrúar síðastliðnum. Björn Ingi Hrafnsson.Steikhúsið var áður í eigu félagsins Potts ehf. sem Kristján Þór Sigfússon átti en hann hafði verið annar eigenda Argentínu nánast frá upphafi, eða frá árinu 1990. Eftir að Bos ehf. var stofnað af KPMG undir nafninu AB596 ehf. tók hæstaréttarlögmaðurinn Sigurður G. Guðjónsson við félaginu nokkrum dögum síðar. Nafni þess var breytt í Bos ehf., Sigurður skráður stjórnarmaður og prókúruhafi þess og dóttir hans, Edda Sif Sigurðardóttir, ráðin framkvæmdastjóri samkvæmt tilkynningu til fyrirtækjaskrár. Sigurður þvertekur fyrir að hafa nokkra aðkomu að félaginu í dag en staðfestir að hafa komið að því að kaupa eignir Argentínu á sínum tíma. Engar tilkynningar um breytingar á stjórn félagsins hafa þó verið tilkynntar. Félagið Pottur var svo úrskurðað gjaldþrota í mars en taprekstur hafði verið á Argentínu undanfarin ár og skuldabyrðin þung. Kristján Þór segir að aðkomu hans að Argentínu sé nú lokið.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Vikan sem vex og vex: „Magatilfinningin er jafnvel mikilvægust“ Atvinnulíf Útboðið fari vel af stað og allar líkur á að magnið aukist Viðskipti innlent Verslun Nettó í Glæsibæ opnar líklega á morgun Viðskipti innlent Apple skoðar að stýra snjalltækjum með hugsunum Viðskipti erlent Varar við framtíðarreikningum í nafni barnsins Neytendur Áskriftir borist í 20 prósenta hlut í Íslandsbanka Viðskipti innlent Jákvætt að almenningur njóti forgangs við söluna Viðskipti innlent Útboðið á ríkishlutum í Íslandsbanka hafið Viðskipti innlent Dregur úr tapi og notendum fjölgar um 66 prósent Viðskipti innlent Síðasti dropinn á sögulegri stöð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Útboðið fari vel af stað og allar líkur á að magnið aukist Jákvætt að almenningur njóti forgangs við söluna Áskriftir borist í 20 prósenta hlut í Íslandsbanka Verslun Nettó í Glæsibæ opnar líklega á morgun Dregur úr tapi og notendum fjölgar um 66 prósent Vonar að almenningur nýti forganginn í bankasölunni Ráðinn forstöðumaður Öryggislausna OK Útboðið á ríkishlutum í Íslandsbanka hafið Síðasti dropinn á sögulegri stöð Ráðuneytið ræður fjögur íslensk fjármálafyrirtæki vegna sölunnar á Íslandsbanka Sjóvá fundaði með PPP en afþakkaði þjónustu Svandís tekur við Fastus lausnum Ráðinn framkvæmdastjóri Starbucks á Íslandi Tæknin geti komið í veg fyrir þjófnað Hafa þegar skilað nettóbindingu en tafir á stærri föngunarstöð „Umbreyting í átt að velsældarhagkerfi krefst hugrekkis“ Salan á Íslandsbanka: Samið við fjóra erlenda söluaðila Til IDS á Íslandi frá Íslenskri erfðagreiningu Hagnaðist um rúma fimm milljarða á fyrsta ársfjórðungi Hundrað og fimmtíu manns unnu að opnuninni Samþykktu að bæta við leið fyrir stóra fjárfesta í sölu Íslandsbanka Gríðarlegt áhyggjuefni fyrir Norðurþing Ingunn ráðin framkvæmdastjóri Auðnu Rannsakendur og nemendur við HA fá aðgang að sérhæfðu gervigreindartóli Tæplega átta milljarða króna viðsnúningur milli ára Rekstrarstöðvun sé yfirvofandi á Bakka Til Samtaka atvinnulífsins eftir mánuð á auglýsingastofu Margrét hættir sem forstjóri Nova Sýkna í Samskipamálinu en Eimskip þarf samt að passa sig Ekkert fékkst upp í gjaldþrot upp á tugi milljóna Sjá meira