Vopnaður og vímaður á 130 kílómetra hraða Stefán Ó. Jónsson skrifar 3. október 2017 06:11 Vopn fannst í bílnum Vísir/eyþór
Lögreglan stöðvaði ökumann sem mælst hafði á 130 km/klst hraða á Reykjanesbraut í Garðabæ um klukkan 21 í gærkvöldi. Í ljós kom að ökumaðurinn var ekki einungis undir áhrifum fíkniefna heldur einnig réttindalaus. Við öryggisleit á ökumanninum á einnig að hafa fundist „stunguvopn“ en því er ekki nánar lýst í skeyti lögreglunnar nú í morgun. Var hann því handtekinn og færður á lögreglustöðina í Hafnarfirði þaðan sem hann var laus eftir sýnatöku. Um svipað leyti fékk lögreglan tilkynningu um að ráðist hafi verið á starfsmann veitingastaðar í miðborg Reykjavíkur. Ofbeldisseggurinn var á bak og burt þegar lögreglumenn komu á svæðið en segja þeir að vísbendingar liggi fyrir um hver þarna var á ferli. Meiðsl þolandans eru jafnframt sögð minniháttar. Þá voru einnig hafðar hendur í hári fíkniefnasala sem hafði í fórum sínum „töluvert“ magn af vímuefnum og lyfseðilsskyldum lyfjum. Að lokinni skýrslutöku var hann laus.
Lögreglumál Mest lesið Rýming í Neskaupstað og á Seyðisfirði Innlent „Ég hef enga hugmynd um hvaða maður þetta er“ Innlent Tuttugu manns í rútuslysi Innlent Vaktin: Vopnahlé tekur gildi á Gasa Erlent TikTok bann í Bandaríkjunum Erlent Mun færri slasaðir eftir skíðaslysið en talið var í fyrstu Erlent „Gríðarlegt högg“ ef bannið varir til frambúðar Innlent Stofnaði eigin „meme“-rafmynt rétt fyrir embættistöku Erlent Fundu villtan mann í skítaveðri á Fagradalsfjalli Innlent Landið mest allt gult í dag Innlent Fleiri fréttir Sjálfstæðisflokkurinn þurfi ferskt upphaf „Gríðarlegt högg“ ef bannið varir til frambúðar Vill að þingið leyfi Hvammsvirkjun með bráðabirgðalögum Vopnahlé og ákvörðun tekin um rýmingu á Austfjörðum Rýming í Neskaupstað og á Seyðisfirði Tuttugu manns í rútuslysi Háskólinn, Hvammsvirkun og Sjálfstæðisflokkurinn á Sprengisandi Landið mest allt gult í dag Fundu villtan mann í skítaveðri á Fagradalsfjalli „Ég hef enga hugmynd um hvaða maður þetta er“ Ný og glæsileg heilsugæslustöð opnuð í Vogum „Algjört þjóðaröryggismál að hafa þetta í lagi“ Vegalokanir líklegar í Öræfasveit á morgun Drepin í árás daginn fyrir vopnahlé Umfangsmikil æfing á rofi á sæstrengjum og kveðjustund í Hafnarfirði Hvalir spókuðu sig í Hafnarfjarðarhöfn Prófessorar íhuga verkfall: „40% akademísks starfsfólks í kulnun eða komin langt á leið“ E. coli fannst í neysluvatni Ærslabelgur og aparóla óskast á Hvolsvöll Grímuklæddi maðurinn kúkaði aftur á bílinn Snarpur skjálfti við Trölladyngju Undirbúa verkföll: „Þetta er ömurleg staða að svona skuli standa“ Sagði nei við sölu Íslandsbanka en treystir ráðherra fullkomlega nú Breytt afstaða til sölu á Íslandsbanka og samgöngutruflanir Veðurviðvaranir og vegalokanir Sjálfstæðisflokkurinn þurfi að breikka faðminn og vera hlýrri Reyndi að stinga af á bíl og svo á hlaupum Fengu tæpar fimm og sex milljónir króna í tvöföldum launagreiðslum Viðbúin því að fylgjendum fækki í kjölfar TikTok-banns Finnst of langt gengið í glæpavæðingu í umfjöllun um Carbfix Sjá meira