Hreint lak hjá Hannesi

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Hannes Þór Halldórsson í leik með Randers.
Hannes Þór Halldórsson í leik með Randers. Vísir/Getty
Hannes Þór Halldórsson hélt marki sínu hreinu í öðrum sigri Randers á tímabilinu í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Århus mætti í heimsókn til Randers í dag.

Daniel Pedersen fékk tvö gul spjöld á níu mínútna millibili og þurfti því að fara af velli og Randers lék manni fleiri síðasta hálftíman.

Ólán Århus hélt áfram, því Pierre Kanstrup skoraði sjálfsmark á 80. mínútu. Markið var það eina sem leit dagsins ljós í leiknum og réði því úrslitum, Randers sigraði 1-0.

Randers er þó enn á botni deildarinnar, en aðeins munar einu stigi á næsta liði fyrir ofan.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira