Er talið að vilji eigendanna, þeirra Eiríks Sigurðarsonar kaupmanns og eiginkonu hans, Helgu Gísladóttur, standi nú til þess að selja einungis verslun Víðis í Skeifunni, en hún er fyrsta verslunin sem þau opnuðu árið 2011. Auk verslunarinnar í Skeifunni starfrækir Víðir verslanir við Hringbraut í Vesturbæ, Ingólfsstræti, Borgartún og á Garðatorgi í Garðabæ.

Ólafur til BBA
Lögmannsstofan BBA Legal hefur ráðið Ólaf Jóhannes Einarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóra innra markaðssviðs ESA, eftirlitsstofnunar EFTA, sem ráðgjafa. Hóf Ólafur störf hjá lögmannsstofunni fyrr á árinu.Á meðal helstu sérsviða Ólafs eru Evrópuréttur, samkeppnisréttur, stjórnsýsluréttur og orkuréttur. Var hann í teymi lögfræðinga stofunnar sem veitti kanadíska stórfyrirtækinu Innergex Renewable Energy lögfræðilega ráðgjöf við kaup fyrirtækisins á Alterra Power, stærsta hluthafa HS Orku, fyrr í haust.
Lækka aftur verð
Nasdaq á Íslandi tilkynnti í liðinni viku um lækkun á gjaldskrá félagsins, en þetta er í annað sinn á jafnmörgum árum sem félagið lækkar verð til viðskiptavina sinna.Leiða má að því líkur að lækkunin sé gerð til þess að bregðast við yfirvofandi samkeppni við Verðbréfamiðstöðina sem hyggst taka til starfa á fyrsta fjórðungi næsta árs.
Með stofnun Verðbréfamiðstöðvarinnar verður bundinn endi á einokunarstöðu Nasdaq á markaði með skráningu verðbréfa. Nasdaq, en Guðrún Blöndal er framkvæmdastjóri verðbréfamiðstöðvar félagsins, hagnaðist um 308 milljónir í fyrra og var arðsemi eigin fjár 52 prósent.
Skotsilfrið er óvægin innsýn inn í bakherbergi viðskipta og atvinnulífs á landinu. Pistillinn birtist í Markaðnum í Fréttablaðinu á miðvikudögum.