30 stig á 30 mínútum hjá Curry og Westbrook með þrennu | Myndband Tómas Þór Þórðarson skrifar 4. desember 2017 07:03 Stephen Curry. Vísir/Getty
Golden State Warriors vann auðveldan 123-95 sigur á Miami Heat á útivelli í NBA-deildinni í körfubolta í nótt en þetta var þriðji sigur liðsins í röð og sá 28. á tímabilinu. Steph Curry var sjóðheitur og skoraði 30 stig á 30 mínútum en hann hitti úr fimm af níu þriggja stiga skotum sínum. Kevin Durant bætti við 24 stigum fyrir Golden State sem er í öðru sæti vesturins á eftir Houston Rockets. Houston vann einmitt sjöunda leikinn í röð þegar að liðið pakkaði LA Lakers saman á útivelli, 118-95. Lakers-liðið er aðeins búið að vinna sex leiki af þrettán á heimavelli og er í ellefta sæti vesturdeildarinnar. James Harden fór á kostum að vanda og skoraði 36 stig auk þess sem hann gaf níu stoðsendingar en Chris Paul skoraði 21 stig fyrir toppliðið í vestrinu. Russell Westbrook hlóð svo í sjöundu þrennu sína á tímabilinu þegar að hann skoraði 22 stig, tók tíu fráköst og gaf tíu stoðsendingar í glæsilegum 90-87 sigri OKC gegn San Antonio Spurs á heimavelli. Spurs er sem fyrr í þriðja sæti vesturliðsins en Thunder er í níunda sæti, búið að vinna tvo leiki í röð.Úrslit næturinnar: New York Knicks - Orlando Magic 100-105 Miami Heat - Golden State Warriors 95-123 OKC Thunder - San Antonio Spurs 90-87 Minnesota Timberwolves - LA Clippers 112-106 LA Lakers - Houston Rockets 95-118
NBA Mest lesið Fylltu í eyðurnar: Vanmetnasti leikmaður deildarinnar? Enski boltinn Einkaviðtal við Carrick: „Hálfgerð tískubylgja sem einkennir fótboltann í dag“ Enski boltinn Fyrirliði Real Madríd þarf að fara í aðgerð á hné Fótbolti Stólarnir ekki í vandræðum á Egilsstöðum Körfubolti Markaóður Stefán Ingi eftirsóttur Fótbolti Öllu búin skildi snjóspáin raungerast Fótbolti „Varnarleikurinn er bara stórslys“ Enski boltinn Túfa rekinn frá Val Íslenski boltinn „Eitthvað sem við erum óvanar eftir Þjóðadeildina“ Fótbolti Heimir kynntur til leiks í Árbænum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Stólarnir ekki í vandræðum á Egilsstöðum Enginn Lakers-maður hafði náð þessu í meira en 52 ár Veðmál rædd í Körfuboltakvöldi: „Bara ævintýralega heimskulegt“ Kvöddu húsið og Nablinn klifraði í kveðjuskyni Martin naut sín í fræknum sigri á meisturum Bayern Tryggvi lykilmaður í sigri Bilbao Elvar skoraði tólf í naumu tapi Tilþrifin: Varin skot og ótrúlegar körfur Valsmanna Þriðja tapið í röð hjá Jóni og félögum Fáránlegt eða klókt hjá Kristófer? „Ef það má þá gerir fólk það“ Brassi tekur við af Billups „Það er æðislegt að kveðja húsið svona“ Uppgjörið: ÍA - Álftanes 76-74 | ÍA kvaddi Vesturgötuna með stæl Uppgjörið: Stjarnan - ÍR 91-93 | ÍR skellti meisturunum „Ekki æskilegt og ekki það sem körfuboltinn vill standa fyrir“ Nær fimmtán árum og ætlar með Ísland á HM Stjórnarmaður KKÍ auglýsir ólöglega veðmálastarfsemi Handtökur í NBA: Lak upplýsingum um meiðsli James og bað um bita af kökunni Mál Kristófers enn til skoðunar og fleiri komin á borð KKÍ Uppgjörið: Ármann-Keflavík 94-107 | Öruggt hjá Keflvíkingum Daníel: Ég fór í smá ævintýra starfsemi Uppgjörið: Þór Þ. - Valur 117-119 | Vals sigur eftir tvær framlengingar Uppgjörið: Njarðvík-Tindastóll 98-90 | Njarðvíkingar skelltu Stólunum Átti sumar engu öðru líkt „Ég held að bæði lið séu ekkert himinlifandi með sína frammistöðu“ Uppgjörið: Grindavík-KR 78-77 | Arnór Tristan með sigurkörfuna Þjálfari og leikmaður í NBA handteknir Sá eftirsóttasti treystir bara á pabba gamla Þrenna Maddie Sutton dugði ekki á Hlíðarenda Elvar tapaði á grátlegan hátt á móti gömlu félögunum Sjá meira