Hin árlega Kryddsíld verður í beinni útsendingu á Stöð 2, Vísi og Bylgjunni að vanda, í dag. Þátturinn hefst klukkan 14 og stendur til klukkan 15.45.
Kryddsíldin hefur verið fastur liður í áramótahefðum margra Íslendinga í áraraðir en henni er nú sjónvarpað 27. árið í röð.
Farið verður yfir fréttaárið, rætt verður við stjórnmálafólk og boðið upp á hressandi skemmtiatriði. Rýnt verður í fortíð og framtíð og ýmislegt fleira.
Hægt verður að fylgjast með beinu útsendingunni í spilaranum hér fyrir ofan á slaginu tvö.
Uppfært klukkan 17:45
Útsendingunni er lokið en Kryddsíldina má sjá í spilaranum að ofan. Það vantar aðeins framan af þættinum, beðist er velvirðingar á því.
