Þegar litið er til hinna Norðurlandanna má sjá að tíðni stroks úr lokuðum fangelsum er ekki ósvipuð hér og annars staðar en hins vegar er strok úr opnum fangelsum mun fátíðara hér á landi samanborið við hin Norðurlöndin enda alls enginn strokið úr opnu fangelsi á síðustu tíu árum ef frá eru taldir tveir árið 2016 og svo Sindri Þór Stefánsson síðastliðinn mánudag.
Sjá einnig: Pantaði flugmiða fyrir flóttann og kom með leigubíl til flugstöðvarinnar

Páll segir kosti þess að bjóða upp á afplánun í opnari fangelsum ótvíræða.
„Við erum í rauninni að feta í fótspor Norðurlandanna sem hafa náð hvað mestum árangri á heimsvísu í betrun fanga. Það getur vissulega haft þau áhrif að menn strjúki, enda þótt við sjáum ekki aukningu í því hér á landi, en það hefur líka þau áhrif að árangur við betrun þessara einstaklinga eykst og líkurnar á því að þeir brjóti aftur af sér minnka og það er heila markmiðið með þessu öllu saman,“ segir Páll.
Hann segir möguleika á afplánun í opnu fangelsi virka sem gulrót fyrir fanga, sem bíða flestir eftir að komast á Kvíabryggju eða Sogn. Til að eiga möguleika á því þurfa þeir að taka til í lífi sínu og vinna til dæmis í fíknisjúkdómum, enda edrúmennska skilyrði fyrir afplánun í opnu fangelsi.
„Það umhverfi er mun nær því sem gerist úti í hinu frjálsa samfélagi og flestir vilja talsvert til þess vinna að komast í þessi pláss.“