Brúðkaupstertur Stalíns Þorvaldur Gylfason skrifar 19. apríl 2018 07:00 Að loknum frækilegum sigri gegn nasistum í síðari heimsstyrjöldinni ákvað Jósef Stalín að byggja skýjakljúfa í Moskvu til að stappa stálinu í Rússa og til að sýna Bandaríkjamönnum að fleiri en þeir kynnu að reisa háhýsi. Húsin risu á árunum 1947-1953 og eru ýmist kölluð sjö systur eða brúðkaupstertur Stalíns.Lenín átti að snúast … Húsin áttu að verða átta en urðu bara sjö. Hæst þeirra var húsið sem var lagt undir ríkisháskólann í Moskvu og gnæfir enn yfir borgina. Tvö urðu stjórnarbyggingar, annað fyrir utanríkisráðuneytið. Tvö urðu hótel, nú Hilton (áður Hótel Leningradskaya) og Radisson (áður Hótel Úkraína). Og tvö urðu íbúðarhús handa valdsmönnum og vinum þeirra. Húsin voru eins og byggðakjarnar því þar var öll algeng þjónusta í boði innan dyra. Í upphaflega íbúahópnum var Faina Ranevskaya, fræg leikkona sem sagðist búa milli brauðs og leika því öðrum megin við íbúð hennar var bakarí og hinum megin var bíó. Erindrekar leyniþjónustunnar KGB báðu hana að njósna um nágrannana en hún sagðist ganga í svefni og því miður ekki geta ábyrgzt hvað hún segði þegar svo bæri við. Þessu til staðfestingar gekk hún í svefni um ganga hússins næstu nætur og lét ýmislegt flakka svo þeir hjá KGB sáu þann kost vænstan að snúa sér annað. Brúðkaupstertunafnið stafaði af því að Stalín skipaði arkitektunum að skreyta þök húsanna eftir sínum smekk. Krústsjov leyfði arkitektunum að taka skrautið niður að Stalín látnum. Um dauða Stalíns fjallar afar skemmtileg og að mestu leyti sannsöguleg ný kvikmynd sem er nú sýnd um allar jarðir nema í Rússlandi þar sem hún er bönnuð. Áttunda húsið átti að verða hæsta hús í heimi, hærra en Empire State-byggingin í New York, með risavaxið flóðlýst líkneski af Lenín sem myndi snúast uppi á þakinu í 400 metra hæð, en af því varð ekki.… en fékk í staðinn að liggja smurður Nikita Krústjov, eftirmaður Stalíns sem aðalritari Kommúnistaflokksins, afhjúpaði glæpi Stalíns á þingi flokksins 1956 og lét taka niður minnismerki um hann, þó ekki alveg öll. Mósaíkmyndum í fagurlega skreyttu neðanjarðarlestakerfinu í Moskvu var breytt með því að höggva Stalín út úr myndunum og setja Lenín inn í staðinn eða svífandi fugla eða bara eitthvað. Neðanjarðarkerfið er óvenjulegt fyrir þá sök að þvert á brautirnar sem liggja frá norðri til suðurs og austri til vesturs o.s.frv. er hringbraut. Stalín var að drekka kaffið sitt þegar verkfræðingar komu til að sýna honum teikningar að lestakerfinu, hann lagði bollann sinn á kortið meðan hann setti stafina sína á það og bollinn skildi eftir sig brúnan hring á kortinu. Verkfræðingarnir töldu öruggast að leggja hringbrautina. Stalín fékk að halda grafreit sínum í Kreml. Og Lenín liggur enn smurður og lítill fyrir mann að sjá í skotheldu glerbúri í grafhýsi sínu á Rauða torginu. Sem minnir mig á manninn sem kom að mjög langri biðröð við grafhýsið og gaf sig á tal við borðalagða verðina til að athuga hvort hann gæti komizt fram fyrir röðina. Kemur ekki til greina, sögðu verðirnir. En ef ég gef ykkur rúblur? spurði maðurinn og veifaði seðlabúnti framan í verðina. Ekki við það komandi, sögðu þeir og sátu fastir við einn keip. En ef ég býð ykkur vodka? spurði maðurinn enn og sýndi þeim flöskuna. Þú meinar, sögðu verðirnir. Viltu koma inn eða eigum við að koma með karlinn út? Enn eru þeir margir sem mæra Stalín, einkum í dreifðum byggðum Rússlands, þrátt fyrir allt sem um hann er nú vitað. Skoðanakannanir sýna að þeir sem mæra Stalín styðja langflestir Pútín forseta og virðast kæra sig kollótta um spillinguna, morðin o.fl. Ný vísitala laga og réttar skipar Rússlandi í 89. sæti meðal 133 landa, Bandaríkjunum í 19. sæti og Danmörku, Noregi, Finnlandi og Svíþjóð í fjögur efstu sætin. Lýðræði útheimtir virðingu fyrir lögum og rétti.Ástand og horfur Rússar eru nú tæplega hálfdrættingar á við Bandaríkjamenn mælt í kaupmætti þjóðartekna á mann. Það er miklu minni munur en blasti við þegar Sovétríkin hrundu 1991. Þeir sem segja að munurinn sé nú sexfaldur eða sjöfaldur bera saman landsframleiðslu á mann án tillits til að tekjur hrökkva miklu lengra í Rússlandi en í Bandaríkjunum þar eð framfærslukostnaður er lægri í Rússlandi. Efnahagslífið hefur tekið stakkaskiptum. Hlutdeild landbúnaðar í hagkerfinu er komin niður fyrir 5% m.a. til að rýma fyrir verzlun og þjónustu sem standa á bak við 63% af landsframleiðslu Rússa á móti 79% í Bandaríkjunum og 71% hér heima skv. upplýsingum Alþjóðabankans. Það háir Rússum að fáir kæra sig um að kaupa af þeim annað en olíu, vodka og vopn. Efnahagslíf þeirra er um of háð útflutningi á olíu og gasi sem hafa lækkað verulega í verði á heimsmarkaði. Margt bendir til að verðlækkunin sé varanleg. Einhæfni getur verið hættuleg. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Birtist í Fréttablaðinu Þorvaldur Gylfason Mest lesið Halldór 31.05.2025 Halldór Er stríðsglæpamaður í rútunni? Ragnhildur Hólmgeirsdóttir, Hrönn Guðmundsdóttir Skoðun Nú er tími til aðgerða: Tóbaks- og nikótínfrítt Ísland Vala Smáradóttir,Jóhanna S. Kristjánsdóttir Skoðun Er ekki tími til kominn að tengja? Kristín María Birgisdóttir Skoðun Til hamingju með sjómannadaginn Sigurjón Þórðarson Skoðun Barnasáttmáli fyrir öll börn Guðný Björk Eydal,Paola Cardenas Skoðun Tjáningarfrelsi, gagnrýni og Snorri Másson Birgir Orri Ásgrímsson Skoðun Súrdeigsbrauð, ilmkjarnaolíur og Samtökin 78 Snorri Másson Skoðun Ójafnvægið sem heimurinn býr við – og skellur á Bakka Erna Bjarnadóttir Skoðun Eins skýrt og það verður Jóna Hlíf Halldórsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Er stríðsglæpamaður í rútunni? Ragnhildur Hólmgeirsdóttir, Hrönn Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Nú er tími til aðgerða: Tóbaks- og nikótínfrítt Ísland Vala Smáradóttir,Jóhanna S. Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Til hamingju með sjómannadaginn Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Er ekki tími til kominn að tengja? Kristín María Birgisdóttir skrifar Skoðun Barnasáttmáli fyrir öll börn Guðný Björk Eydal,Paola Cardenas skrifar Skoðun Ójafnvægið sem heimurinn býr við – og skellur á Bakka Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bensínstöðvardíll og Birkimelur Helgi Áss Grétarsson skrifar Skoðun Trollveiðar og veiðiráðgjöf Magnús Jónsson skrifar Skoðun Gríðarlegir hagsmunir í húfi Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Skynsamleg forgangsröðun fjár Ragnhildur Jónsdóttir skrifar Skoðun Eins skýrt og það verður Jóna Hlíf Halldórsdóttir skrifar Skoðun Tjáningarfrelsi, gagnrýni og Snorri Másson Birgir Orri Ásgrímsson skrifar Skoðun Að sameinast fjölskyldu sinni Guðrún Brynjólfsdóttir skrifar Skoðun Þögnin sem skapaði ótta – arfleifð Þórarins í Sameyki Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Súrdeigsbrauð, ilmkjarnaolíur og Samtökin 78 Snorri Másson skrifar Skoðun Eru forvarnir í hættu? Dagbjört Harðardóttir skrifar Skoðun Tveir alþingismenn og Gaza Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Hver borgar fyrir ódýrar lóðir? Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Erum við að lengja dauðann en ekki lífið? Ágúst Ólafur Ágústsson skrifar Skoðun Mikill munur á aðgengi að líknarmeðferð í Evrópu Kristín Lára Ólafsdóttir skrifar Skoðun Sumarið verður nýtt vel til uppbyggingar snjóflóðavarna Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Verður það að vera Ísrael? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Dýravernd - frumbyggjahættir Árni Stefán Árnason skrifar Skoðun Stórstraumsfjara mæld - HMS ráðþrota Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum fordómum ekki umburðarlyndi Snorri Sturluson skrifar Skoðun Landbúnaður á tímamótum – Við þurfum nýja stefnu Guðjón Sigurbjartsson skrifar Skoðun Sjómenn til hamingju! Lilja Rafney Magnúsdóttir skrifar Skoðun Leyfum mennskunni að sigra Anna Hildur Hildibrandsdóttir skrifar Skoðun Fjölskyldan fyrst Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Hvað er markaðsverð á fiski? Sverrir Haraldsson skrifar Sjá meira
Nú er tími til aðgerða: Tóbaks- og nikótínfrítt Ísland Vala Smáradóttir,Jóhanna S. Kristjánsdóttir Skoðun
Skoðun Nú er tími til aðgerða: Tóbaks- og nikótínfrítt Ísland Vala Smáradóttir,Jóhanna S. Kristjánsdóttir skrifar
Nú er tími til aðgerða: Tóbaks- og nikótínfrítt Ísland Vala Smáradóttir,Jóhanna S. Kristjánsdóttir Skoðun