Spænsk yfirvöld hafa afhent gögn í máli Sunnu Elviru Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 18. apríl 2018 11:39 Spænsk yfirvöld afhentu í gær lögreglunni á Höfuðborgarsvæðinu gögn í máli Sunnu Elviru Þorkelsdóttur. Vísir/Egill Aðalsteinsson
Spænsk yfirvöld afhentu í gær Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu gögn í máli Sunnu Elviru Þorkelsdóttur. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni verða málsgögnin, sem eru á spænsku og ensku, send í þýðingu og eftir það verði hægt að meta hver réttarstaða Sunnu Elviru er hér á landi. Sunna Elvira var sett í farbann á Spáni þegar eiginmaður hennar Sigurður Kristinsson var handtekinn í janúar hér á landi grunaður um aðild að stórfelldum fíkniefnainnflutningi í svokölluðu skásambandsmáli. Farbanninu yfir Sunnu var aflétt á dögunum og hún kom til landsins með sjúkraflugi fyrir rúmri viku og var lögð inn á Grensás þar sem hún er í endurhæfingu eftir að hún lamaðist við fall á Málaga á Spáni. Sigurður Kristinsson hefur setið í gæsluvarðhaldi hér á landi síðan í janúar. Héraðssaksóknari ákærði hann fyrir skattalagabrot við rekstur verktakafyrirtækisins SS verks þann 9. apríl síðastliðinn. Málið verður þingfest í Héraðsdómi Reykjaness 30. apríl næstkomandi, en samkvæmt upplýsingum frá héraðssaksóknara er ákært fyrir meiriháttar skattalagabrot. Gæsluvarðhaldi yfir Sigurði rennur út í dag en fyrir hádegi var ekki ljóst hvort farið yrði fram á framhald á því.
Mál Sunnu Elviru Mest lesið Rýming í Neskaupstað og á Seyðisfirði Innlent Vaktin: Vopnahlé tekur gildi á Gasa Erlent Reyndi að fá bóluefni gegn Covid úr umferð á versta tíma Erlent „Sérstakt gleðiefni og gleður mitt hjarta“ Innlent „Gríðarlegt högg“ ef bannið varir til frambúðar Innlent Tuttugu manns í rútuslysi Innlent „Ég hef enga hugmynd um hvaða maður þetta er“ Innlent Sjálfstæðisflokkurinn þurfi ferskt upphaf Innlent Opna fyrir Tiktok á nýjan leik Erlent Stofnaði eigin „meme“-rafmynt rétt fyrir embættistöku Erlent Fleiri fréttir Umhverfis- og tæknisvið uppsveita á Laugarvatni Ók inn í snjóflóð í Breiðdal Um 170 íbúar komnir með húsaskjól og rýmingarsvæðum fjölgað Rýmingar á Austfjörðum, vopnahlé og dýramessa „Sérstakt gleðiefni og gleður mitt hjarta“ Sjálfstæðisflokkurinn þurfi ferskt upphaf „Gríðarlegt högg“ ef bannið varir til frambúðar Vill að þingið leyfi Hvammsvirkjun með bráðabirgðalögum Vopnahlé og ákvörðun tekin um rýmingu á Austfjörðum Rýming í Neskaupstað og á Seyðisfirði Tuttugu manns í rútuslysi Háskólinn, Hvammsvirkun og Sjálfstæðisflokkurinn á Sprengisandi Landið mest allt gult í dag Fundu villtan mann í skítaveðri á Fagradalsfjalli „Ég hef enga hugmynd um hvaða maður þetta er“ Ný og glæsileg heilsugæslustöð opnuð í Vogum „Algjört þjóðaröryggismál að hafa þetta í lagi“ Vegalokanir líklegar í Öræfasveit á morgun Drepin í árás daginn fyrir vopnahlé Umfangsmikil æfing á rofi á sæstrengjum og kveðjustund í Hafnarfirði Hvalir spókuðu sig í Hafnarfjarðarhöfn Prófessorar íhuga verkfall: „40% akademísks starfsfólks í kulnun eða komin langt á leið“ E. coli fannst í neysluvatni Ærslabelgur og aparóla óskast á Hvolsvöll Grímuklæddi maðurinn kúkaði aftur á bílinn Snarpur skjálfti við Trölladyngju Undirbúa verkföll: „Þetta er ömurleg staða að svona skuli standa“ Sagði nei við sölu Íslandsbanka en treystir ráðherra fullkomlega nú Breytt afstaða til sölu á Íslandsbanka og samgöngutruflanir Veðurviðvaranir og vegalokanir Sjá meira