Skoðun

Menntamál – ekki bara á tyllidögum

Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar
Í áratugi hefur umræða um mikilvægi menntunar verið fyrirferðarmikil í hátíðarræðum stjórnmálamanna. Þegar niður úr pontu er stigið eru orðin gleymd og efndir litlar. Þetta er gömul saga og ný sem skólafólk þekkir.

Í kjölfar efnahagshrunsins fyrir nær tíu árum var víðast hvar skorið niður fé til skóla. Í Kópavogi var skorið niður um tugi milljóna og á það bentum við hjá Vinstri grænum fyrir kosningarnar árið 2014. Þrátt fyrir betri efnahagsstöðu síðustu misserin hefur þeim fjármunum ekki verið skilað til baka. Meirihluti bæjarstjórnar Kópavogs er búinn að núllstilla og gleyma. Börn líða fyrir að fá ekki þá þjónustu sem þau eiga rétt á og þarfnast til að byggja upp sterka sjálfsmynd og menntast á eigin forsendum. Kennurum eru sífellt falin aukin verkefni og álagið eykst. Ef áfram heldur sem horfir munu brátt vera fáir menntaðir kennarar í leikskólum bæjarins og grunnskólar gætu farið að standa frammi fyrir kennaraskorti.

Loforðasamkeppni

Nú fyrir sveitarstjórnarkosningarnar keppast frambjóðendur við að yfirbjóða hver annan og málefni leik- og grunnskóla eru fyrirferðarmikil í loforðaflauminum. Í þessu sambandi vil ég minna á að þetta eru gjarnan sömu framboðin og hafa verið við völd í sveitarfélögunum, jafnvel í áratugi, án þess að forgangsraða í þágu barna og menntunar þeirra. Í stefnu Sjálfstæðisflokksins sem birtist í málgagni hans Vogum, flokka þeir fyrsta skólastigið, leikskólann, til umönnunar en ekki menntunar og tala um dagMÆÐUR en ekki dagforeldra. Sjálfstæðisflokkurinn situr eftir í fortíðinni og virðist ekki vita að leikskólar eru menntastofnanir og leikskólinn er fyrsta skólastigið. Fulltrúi annars framboðs í Kópavogi hefur komið með tillögu um aukið eftirlit með fjarvistum kennara í grunnskólum. Traustinu til stéttarinnar, virðingu og þekkingu á málefninu er ekki fyrir að fara hjá þessum aðilum.

Ég starfaði sem grunnskólakennari í Kópavogi í meira en 20 ár og hef unnið náið með leikskólakennurum undanfarin ár. Starfsfólk þessara stofnana vinnur mikilvægustu störf sveitarfélaganna, en býr við bág kjör, mikið álag og slæmar vinnuaðstæður. Þetta starfsfólk er undirstaða velferðar hvers sveitarfélags og menntunar barnanna okkar. Alla daga, ekki bara tyllidaga.

Vinstri græn í Kópavogi ætla að forgangsraða í þágu barna og fjölskyldna þeirra og okkur er alvara. Við viljum samvinnu við kennara og annað starfsfólk leik- og grunnskóla, því þeir eru sérfræðingarnir.

Gera þarf stórátak í að fjölga starfsfólki leikskóla, ekki síst leikskólakennurum og styrkja grunnskólann með auknum stuðningi við kennara og nemendur. Bæta þarf starfsaðstæður og launakjör, bæði í leik- og grunnskólum. Þetta þolir enga bið.

Við hjá Vinstri grænum vitum að samfélag sem býr vel að börnum og forgangsraðar í þágu menntunar er gott samfélag. Við vitum líka að skólakerfið er hornsteinn menntunar og félagslegra framfara.

Höfundur er bæjarfulltrúi og skipar 1. sæti á lista Vinstri grænna í Kópavogi






Skoðun

Sjá meira


×