Skoðun

Lokaúrskurður kjararáðs

Kjartan Hreinn Njálsson skrifar
Ritstjórn Fréttablaðsins hefur kært ákvörðun kjararáðs um að synja henni um afrit af fundargerðum ráðsins frá ársbyrjun 2013 til dagsins í dag til úrskurðarnefndar um upplýsingamál. Þetta er staðan eins og hún er í dag. Aðdragandinn er sá að á síðustu misserum, eða frá því í nóvember árið 2017, hefur Fréttablaðið freistað þess að fá afrit af fundargerðum ráðsins, einfaldlega vegna þess að ritstjórn blaðsins telur efni þeirra eiga erindi við almenning.

Kjararáð tekur ekki undir þetta. Allt frá því að formleg fyrirspurn barst frá ritstjórninni á síðasta ári hefur ráðið bæði dregið það að svara fyrirspurninni og gefið skít í störf blaðamanna Fréttablaðsins með því að segja að afstaða verði tekin til hennar „á nýju ári“. Kjararáð hefur tvisvar hafnað fyrirspurnum ritstjórnarinnar á þessu tímabili. Fyrst var fyrirspurnin of víðtæk, og var hún því þrengd og lögð fyrir aftur. Þann 14. mars síðastliðinn var breyttri fyrirspurn hafnað.

Fréttablaðið hefur tvisvar leitað til úrskurðarnefndar um upplýsingamál vegna framgöngu kjararáðs. Ráðið hefur ítrekað dregið það að svara nefndinni.

Í fyrradag barst loks umsögn kjararáðs til nefndarinnar vegna fyrirspurnar Fréttablaðsins. Þar endurspeglast sú fastmótaða, og á sama tíma afvegaleidda, niðurstaða ráðsins að ekki komi til greina að afhenda Fréttablaðinu afrit af fundargerðunum.

Rökstuðningur kjararáðs byggist fyrst og fremst á þeirri fullyrðingu að ráðið heyri ekki undir framkvæmdarvaldið, sé í raun ekki stjórnvald og starfi fyrir alla þrjá arma ríkisvaldsins. Umbeðnar fundargerðir hafi orðið til í tíð eldri laga en þá hafi ráðið verið undanþegið upplýsingalögum í ljósi sérstakrar stöðu sinnar. Kjararáð hyggst ekki afhenda úrskurðarnefndinni gögnin fyrr en niðurstaða liggur fyrir um hvort það falli undir upplýsingalög.

Í þessu máli öllu leynast verðug viðfangsefni löglærðra einstaklinga, og umræðurnar hér á ritstjórn Fréttablaðsins hafa sannarlega verið líflegar um málið. Hér takast á sjónarmið sem taka til stöðu kjararáðs sem lögbundins gerðardóms eða stjórnsýslunefndar með úrskurðarvald; hvort fyrirspurn fjölmiðils sé gild nái hún til tíma þegar ráðið var undanþegið upplýsingalögum; og hvers vegna endanleg ákvörðun um stjórnskipulega stöðu ráðsins hafi ekki verið tekin með lagabreytingum árið 2006 en í greinargerð þess lagafrumvarps kom fram að „þarflaust“ væri að taka afstöðu til málsins.

Hvað sem lagatæknilegum álitamálum líður er hin raunverulega staðreynd málsins sú að kjararáð hefur beitt sér af miklu afli til að hindra það að ritstjórn Fréttablaðsins fái afrit af fundargerðum þess. Gögn sem vafalaust munu varpa nýju ljósi á störf ráðsins. Loka­úrskurður kjararáðs virðist ætla að vera sá að gefa fjölmiðlum, og þar með almenningi, langt nef.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×