Úkraínskt ungstirni í markið hjá Real Madrid Arnar Geir Halldórsson skrifar 20. júní 2018 15:00 Andriy Lunin vísir/getty
Spænska stórveldið Real Madrid er að ganga frá kaupum á úkraínska ungstirninu Andriy Lunin. Spænski fjölmiðillinn Marca greinir frá því að búið sé að ganga frá kaupunum en Evrópumeistararnir eiga enn eftir að gefa út tilkynningu þess efnis. Lunin þykir einn allra efnilegasti markvörður heims en hann á tvö tímabil að baki í úkraínsku úrvalsdeildinni þrátt fyrir að vera aðeins 19 ára gamall. Lunin er 191 sentimetri á hæð. Hann kemur til Real Madrid frá Zorya en hóf sinn meistaraflokksferil hjá Dnipro. Samkvæmt heimildum Marca borgar Real Madrid fjórtán milljónir evra fyrir Lunin. Lunin var á varamannabekk Úkraínu þegar liðið heimsótti Laugardalsvöll í undankeppni HM í Rússlandi á síðasta ári en lék nýverið sinn fyrsta A-landsleik fyrir Úkraínu. Spænskir fjölmiðlar telja að, þrátt fyrir kaupin á Lunin, sé Real Madrid enn að gera sér vonir um að fá brasilíska landsliðsmarkvörðinn Alisson frá Roma.
Spænski boltinn Mest lesið Solskjær: Lét mig vinna launalaust Fótbolti Einkunnir Strákanna okkar á móti Slóveníu: Viktor! Gísli! Hallgrímsson! Handbolti Ísland byrjar á Egyptum og spilar tvo kvöldleiki Handbolti Samfélagsmiðlar yfir sigrinum á Slóveníu: „Viktor Gísli bestur í heimi eða?“ Handbolti Stærsta blað Slóveníu: Sársaukafull kennslustund Handbolti Skýrsla Vals: Viktor og virkisveggurinn Handbolti „Hann veit á hvaða takka á að ýta til að fá mig í gang“ Handbolti Harmur Egypta gæti orðið Íslendingum til happs Handbolti „Þá er helvíti leiðinlegt að spila á móti okkur“ Handbolti Allt jafnt hjá Svíum og Spánverjum Handbolti Fleiri fréttir Forseta FIFA boðið á innsetningu Donald Trump Solskjær: Lét mig vinna launalaust Þróttur fær aðra úr Árbænum Englandsmeistararnir festa kaup á Khusanov Varnarmennirnir björguðu Chelsea Mbappé með slæmar fréttir fyrir mótherja Real Madrid Arnar fer með Ísland til Skotlands Sölvi tekinn við Víkingum með Viktor og Aron til aðstoðar Seldu treyjur Orra á uppboði fyrir fjölskyldu Maciej Elísabet tekin við Belgum Svona hjálpaði Sara fótboltakonum að geta valið bæði fjölskyldu og fótbolta Fowler með sína kenningu um þá samningslausu hjá Liverpool Rotta hljóp um á grasinu á Old Trafford í miðjum leik Neymar á heimleið? „Við erum mögulega lélegasta lið í sögu Manchester United“ Real Madrid á toppinn eftir þægilegan sigur Bjarki Steinn í fyrsta sinn í byrjunarliði Venezia Áttundi sigur Forest í síðustu níu leikjum Yfirlýsing frá City með stórsigri Onana með skelfileg mistök þegar United tapaði enn og aftur fyrir Brighton Cecilía hélt enn einu sinni hreinu og Inter vann Draumaendurkoma hjá Moyes á Goodison Park Misstu niður forystu þrátt fyrir að vera manni fleiri Fyrrverandi landsliðsmaður Englands mætir KSI í boxbardaga Segir Liverpool besta lið heims Antony á leið til Betis Fjármagnaði leikmannakaup Wimbledon með tölvuleikjaspilun Brynjólfur Willumsson á skotskónum í tapleik Groningegn Sex í röð hjá Napólí Juventus lagði AC Milan Sjá meira