Grótta bætir við sig öflugri skyttu Tómas Þór Þórðarson skrifar 10. júlí 2018 12:54 Jóhann Reynir Gunnlaugsson er mættur á Nesið. mynd/grótta
Stórskyttan Jóhann Reynir Gunnlaugsson er búinn að semja við Gróttu í Olís-deild karla í handbolta en hann gengur í raðir liðsins frá Randers í Danmörku. Jóhann Reynir er uppalinn Víkingur og spilaði þar fyrstu ár ferilsins í tveimur efstu deildum Íslandsmótsins en hann fór svo til Danmerkur og spilaði með Lemvig og nú síðast Randers. Hann spilaði síðast í Olís-deildinni með Víkingi veturinn 2015-2016 og var þá lang markahæsti leikmaður liðsins með 114 mörk í 22 leikjum. Hann er mikil markavél. Þetta eru góð tíðindi fyrir Gróttuna sem hefur misst mikinn mannskap eftir síðustu leiktíð þar sem að liðið hafnaði í níunda sæti deildarinnar. Grótta er búin að missa nokkra lykilmenn á borð við Júlíus Þóri Stefánsson, Pétur Árna Hauksson og Ásmund Atlason. Á móti, auk Jóhanns, eru komnir þeir Leonharð Þorgeir Harðarson á láni frá Haukum og Alexander Jón Másson frá Val. Jóhann Reynir ef af miklu íþróttakyni en faðir hans er ofurhlauparinn Gunnlaugur Auðunn Júlíusson, sveitastjóri í Borgarbyggð, og systir hans er María Rún Gunnlaugsdóttir sem hefur verið ein af fremstu frjálsíþróttakonum landsins um árabil.
Olís-deild karla Mest lesið Sagði bíl Red Bull vera algjörlega óökuhæfan Formúla 1 Þrenna á föstudagskvöldi og háskólagráða á laugardegi Íslenski boltinn Englendingar Evrópumeistarar eftir framlengdan leik Fótbolti Stelpurnar okkar mættar í paradísina Fótbolti Stelpurnar stungu sér til sunds í vatninu Fótbolti Lenti ofan á öðrum bíl í Formúlu 2 Formúla 1 Útskrifuð af sjúkrahúsinu og gæti verið með á EM Fótbolti Körfuboltaspjald með Jordan seldist á 243 milljónir króna Körfubolti Chelsea áfram eftir tveggja klukkutíma töf og framlengingu Fótbolti Einhenta undrið ekki í NBA Körfubolti Fleiri fréttir Senda konurnar í Evrópukeppni en ekki karlana Aðeins Færeyingurinn öflugi hefur búið til fleiri mörk á HM en Elmar Færeyingar töpuðu eftir tvíframlengdan leik Forsetabikarinn rann Íslandi úr greipum Ákvæði í samningi Andra tengt brotthvarfi föður hans Norðmenn græddu á því að halda HM í handbolta Kraftaverk Færeyinga: „Þurfum alla leikmenn sem við getum fengið“ Barðist fyrir Viggó við erfiðar aðstæður: „Ég vildi þetta ekki“ Rúnar framlengir og fer í nýtt hlutverk hjá Fram Íslendingar völtuðu yfir Mexíkó á HM Allir hræðist Gísla Þorgeir: „Þekktasta nafnið í handboltaheiminum“ Viktor Gísli kláraði háskólanám með atvinnumennskunni Ein af hetjum Frakka í Laugardalshöllinni látin Færeyingar efstir þrátt fyrir sigur Íslands í síðasta leik Sautján mörk Elmars ekki nóg gegn Færeyjum Gísli þakklátur fjölskyldu sinni: „Minn stærsti mentor í handboltanum og lífinu“ Átti erfitt með að grípa bolta skömmu fyrir sögulega frammistöðu Strákarnir hófu HM á tapi gegn Rúmenum Tárin runnu þegar feðgarnir föðmuðust eftir afrek Gísla í Meistaradeildinni Enn á ný er Íslendingur á bak við sigur Magdeburg í Meistaradeildinni Gísli fékk „deja vu“: Árangur sem aðeins Íslendingar hafa náð Gísli Þorgeir bestur í annað sinn Gísli Þorgeir og Ómar Ingi Evrópumeistarar Nantes vann bronsið sem Barcelona nennti ekki Hetjuleg harka hjá Ómari og Gísla fleytti Magdeburg í úrslit Misstu sinn besta mann en fóru létt með undanúrslitaleikinn Sonurinn smitaði Aron af handa-, fóta- og munnsjúkdómi Landsmeistari í sextánda sinn á ferlinum Þrjár erlendar til nýliðanna á Akureyri „Stress og spenningur að flytja einn út og þurfa læra á uppþvottavél“ Sjá meira