Hvað er þá næst á dagskrá hjá Íranum magnaða sem varð fyrsti maðurinn til að bera tvö heimsmeistarabelti í UFC í nóvember árið 2016 þegar að hann lagði Eddie Alvarez í titilbardaga í léttvigt?
Hann hefur ekki barist í UFC síðan þá en steig inn í hnefaleikahringinn með Floyd Mayweather til að fylla bankabókina á síðasta ári og tapaði.

Beltin burt
Búið er að taka heimsmeistaratitlana af Conor bæði í fluguvigt og léttvigt en hann er í öðru sæti á léttivigtarlistanum á eftir Tony Ferguson en báðir eru á eftir meistanum rússneska Khabib Nurmagomedov.„Núna þegar búið er að afgreiða þessa rútuárás getur hann vonandi farið að einbeita sér að ferlinum aftur. Ég vona innilega að Conor mætir Khabib Nurmagomedov í haust, það er lang stærsti bardaginn í MMA í dag,“ segir Pétur Marinó Jónsson, ritstjóri MMA Frétta og sérfræðingur Stöðvar 2 Sports í blönduðum bardagalistum.
„Conor var tilbúinn að berjast við hann frítt í apríl í þessari blessuðu rútuárás þannig að hann hlýtur að vilja berjast við hann fyrir nokkrar milljónir,“ segir hann.

Á sama stað í Rússlandi
Conor var ekki langt frá því að fara í steininn fyrir rútuárásina í Brooklyn sem beindist að Nurmagomedov. Sá magnaði 29 ára gamli bardagakappi frá Dagestan varð léttvigtarmeistari í apríl en hann hefur unnið alla 26 atvinnumannabardaga sína á ferlinum.„Khabib er auðvitað ríkjandi léttvigtarmeistari eftir að Conor var sviptur titlinum í apríl þannig að Conor gæti þarna endurheimt beltið sitt. Leiðir þeirra liggja saman og trúi ég ekki öðru en að UFC nái að setja þennan bardaga saman. Ég held samt að þetta belti skipti Conor svo sem engu risa máli,“ segir Pétur.
„Það hefur verið talað um bardaga á milli Conor og Khabib í smá tíma núna og hefur verið að marinerast með öllu þessu rútudæmi. Svo voru þeir auðvitað báðir á úrslitaleik HM þar sem Conor var sérstakur gestur Vladimir Pútín á meðan Rússinn Khabib var bara í einhverju ágætis sæti meðal áhorfenda.“

Khabib að þreytast
Nóvember væri góð tímasetning fyrir næsta bardaga Conors en UFC-kvöldið í þeim mánuði fer fram í New York og þar í borg eru menn ekkert alltof spenntir fyrir því að fá ólátabelginn aftur í heimsókn.„Talað hefur verið um að bardaginn fari fram á UFC 229 í október eða UFC 232 í desember. Bæði þessi bardagakvöld fara fram í Las Vegas en það virðist sem það sé eitthvað hik á því að bóka Conor í New York í nóvember í Madison Square Garden eftir lætin sem hann olli í apríl,“ segir Pétur, en þarf Khabib kannski að taka annan í búrinu þar til Conor er klár?
„Khabib er orðinn þreyttur á að bíða eftir Conor og vonandi klárast þetta bara fljótt. Annars eru nokkrir frábærir bardagamenn sem geta ekki beðið eftir því að fá að taka í Khabib. Þeir Dustin Poirier og Eddie Alvarez berjast um helgina og sigurvegarinn þar gæti fengið titilbardaga eða Tony Ferguson ef Conor er af einhverjum ástæðum ekki til í bardaga í haust,“ segir Pétur Marinó Jónsson.