Málið hefur verið kennt við Skáksamband Íslands þar sem reynt var að fela fíkniefnin í skákmunum og senda í húsakynni sambandsins þar sem þau átti að nálgast.
Sigurður sat í gæsluvarðhaldi í tólf vikur, frá 26. janúar til 20. apríl sem er hámarkstíminn án þess að gefin sé út ákæra. Fyrst á grundvelli rannsóknarhagsmuna en síðar á grundvelli almannahagsmuna. Síðan hefur Sigurður verið í farbanni þótt lögmaður Sigurðar, Stefán Karl Kristjánsson, hafi óskað eftir því að hann sætti gæsluvarðhaldi frekar en farbanni.
Hefur Stefán Karl bent á að farbann sé frekar íþyngjandi en gæsluvarðhald í tilfelli Sigurðar þótt almennt þyki hið síðarnefnda, þegar menn eru á bak við lás og slá, þyngra úrræði. Hins vegar er svo að sá tími sem menn eru í gæsluvarðhaldi dregst frá fangelsisvist sem menn gætu síðar verið dæmdir til.
Telur farbann verra en gæsluvarðhald
Héraðsdómur tekur undir sjónarmið Stefáns Karls að rannsókn málsins hafi tekið langan tíma miðað við þær upplýsingar sem gefnar hafi verið af lögreglu. Leggur dómurinn á það áherslu að rannsókn verði flýtt eins og frekast er kostur.Lögregla útskýrir seinagang rannsóknar með töfum sem orðið hafi verið við afhendingu gagna frá lögregluyfirvöldum á Spáni. Í kröfunni um farbann er minnt á að Sigurður gæti átt yfir höfði sér allt að tólf ára fangelsi.
Það varði almannahag að hann geti ekki farið úr landi. Sigurður hefur játað sök í yfirheyrslum hjá lögreglu en fíkniefnin bárust þó aldrei til landsins. Lögregla komst á snoðir um innflutninginn og skipti efnunum, sem falin voru í taflmönnum, út fyrir gerviefni.
Einnig grunaður um skattalagabrot
Sigurður er eiginmaður Sunnu Elvíru Þorkelsdóttur sem féll úr mikilli hæð á heimili þeirra á Spáni í upphafi árs. Sunna man ekki hvað gerðist í aðdraganda þess að hún féll.Eftir að hafa dvalið lengi á spænskum sjúkrahúsum, á meðan hún var grunuð af spænskum yfirvöldum að aðild að smyglinu og í farbanni af þeim sökum, kom hún til Íslands þann 8. apríl.
Þá er Sigurður ákærður fyrir meirháttar skattalagabrot í tengslum við reksturinn á verktakafyrirtækinu SS verk.