

Barátta allra
Enginn vafi er á því að mannkyninu er stórfelld hætta búin vegna loftslagsbreytinga sem það hefur sjálft kallað yfir sig með óvarlegu líferni sem hefur einkennst af skeytingarleysi í garð náttúrunnar. Mannkynið er á hraðri leið með að eyða sjálfu sér og lífi á Jörðinni. Dauðsföll vegna mengunar færast í vöxt og ofsafengnar náttúruhamfarir valda æ fleiri hörmungum ár hvert og kosta ótal mannslíf. Fjölmargar dýrategundir eru í útrýmingarhættu. Höf heimsins súrna hratt og innan ekki margra ára verður þar orðið meira um plast en fiska. Menn hafa lifað í þeirri trú að sjórinn taki lengi við en nú er að renna upp fyrir þeim að hann gerir það ekki endalaust.
Stjórnvöld heims geta ekki firrt sig ábyrgð og verða að vinna að því að gera veröldina lífvænlegri. Fjarska auðvelt er að halda því fram að það skipti engum sköpum fyrir heiminn hvað Ísland aðhefst í þessum málum. Það merkir samt ekki að Íslendingar eigi að yppta öxlum í uppgjöf. Þeir verða að viðurkenna siðferðilega ábyrgð sína og leggja sitt af mörkum. Ríkisstjórnin hefur séð sóma sinn í því að gera aðgerðaáætlun til ársins 2030 þar sem helsta áherslan er á orkuskipti í samgöngum og átak í kolefnisbindingu. Hún er því með einhverja meðvitund í máli sem varðar heimsbyggðina alla.
Ekkert mun þó þokast í rétta átt án þátttöku almennings. Ekki verður annað séð en að íslenskur almenningur geri sér grein fyrir þeim hættum sem steðja að jarðarbúum og vilji leggja sitt lóð á vogarskálarnar til að hamla því að þróunin verði enn verri en hún þegar er. Hins vegar verður ekki horft framhjá því að almenningi er of oft gert erfitt fyrir. Sem dæmi má nefna að fyrirtæki tíðka að ota plastburðarpokum og plastumbúðum að neytendum meðan lítið fer fyrir umhverfisvænni umbúðum.
Fyrirtæki verða að leggja sitt af mörkum og sýna samfélagslega ábyrgð. Það vakti athygli á dögunum þegar tilkynnt var að í Bónus og Hagkaupum yrði hætt að selja plastburðarpoka og í staðinn yrðu seldir niðurbrjótanlegir burðarpokar. Þarna taka stjórnendur ábyrgð og taka vonda kostinn frá neytendum. Líkt og svo margt annað sem snýr að umhverfismálum hefði samt mátt gera þetta svo miklu fyrr. Neytendur hefðu örugglega ekki gólað og vælt og beðið um plastpokana sína hefðu þeir verið teknir úr sölu. Nýleg skoðanakönnun sýnir einmitt að meirihluti þeirra er fylgjandi banni á plastpokum.
Það hlýtur einnig að teljast nokkuð víst að almenningur sé á bandi starfshóps umhverfisráðherra sem leggur til margvíslegar tillögur sem snúa að banni við sölu og notkun á alls kyns plastvörum. Vissulega á að fara varlega í boð og bönn en þegar kemur að baráttu fyrir lífi á jörðinni þá þýðir ekkert hálfkák. Tíminn er að renna út.
Skoðun

Að vilja meira og meira, meira í dag en í gær
Harpa Fönn Sigurjónsdóttir skrifar

Sjálfboðaliðinn er hornsteinninn
Hannes S. Jónsson skrifar

Kallað eftir málefnalegri umræðu um kröfur um íslenskukunnáttu
Eiríkur Rögnvaldsson skrifar

Gangast við mistökum
Júlíus Birgir Jóhannsson skrifar

Um styttingu vinnuvikunnar í leikskólum Reykjavíkurborgar, ákall um leiðréttingu
Anna Margrét Ólafsdóttir,Hafdís Svansdóttir,Jónína Einarsdóttir skrifar

Ríkisstjórnin ræðst gegn ferðaþjónustu bænda
Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar

Að apa eða skapa
Rósa Dögg Ægisdóttir skrifar

Að reyna að „tímasetja“ markaðinn - er það góð strategía?
Baldvin Ingi Sigurðsson skrifar

Lífsnauðsynlegt aðgengi
Bryndís Haraldsdóttir skrifar

Hvers vegna var Úlfar rekinn?
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Eru forsætisráðherra og ríkisstjórn hrædd við vilja fólksins; lýðræðið?
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Þegar við ætluðum að hitta Farage - Á Ísland að ganga í ESB?
Sveinn Ólafsson skrifar

Sama steypan
Ingólfur Sverrisson skrifar

Ofbeldi gagnvart eldra fólki
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar

Að taka ekki mark á sjálfum sér
Kristinn Karl Brynjarsson skrifar

Betri borg
Alexandra Briem skrifar

Að eiga sæti við borðið
Grímur Grímsson skrifar

Hagnaðurinn sem við afsölum okkur: Af hverju salan á Íslandsbanka er samfélagslegt glapræði
Karl Héðinn Kristjánsson skrifar

Íþróttir eru lykilinn
Willum Þór Þórsson skrifar

Framtíð safna í ferðaþjónustu
Guðrún D. Whitehead skrifar

Munu Ísraelsmenn sprengja bifreið páfa í loft upp?
Einar Baldvin Árnason skrifar

Að skapa framtíð úr fortíð
Anna Hildur Hildibrandsdóttir skrifar

Tími til umbóta í byggingareftirliti
Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar

Stærð er ekki mæld í sentimetrum
Sigmar Guðmundsson skrifar

Áður en íslenskan leysist upp
Gamithra Marga skrifar

Lögfræðingurinn sem gleymdi tilgangi laga
Sigríður Svanborgardóttir skrifar

Þétting byggðar – nokkur mistök gjaldfella ekki stefnuna
Samúel Torfi Pétursson skrifar

Breyta lífum til hins betra eða dvelja áfram í hýðum síns vetra?
Tómas Ellert Tómasson skrifar

Hverjum þjónar nýsköpunin?
Halldóra Mogensen skrifar

Heilbrigðisráðherra og stjórn VIRK hafa brugðist okkur
Eden Frost Kjartansbur skrifar